Fara í efni

Bæjarráð

247. fundur
7. júní 2011 kl. 08:45 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Vinnuskóli og sumarvinna 2011 - fyrirkomulag
Málsnúmer 1103084
Rætt um ráðningar ungmenna sem ekki hafa fengið vinnu í sumar. Bæjarstjóra og mannvirkjastjóra falið að vinna að málinu áfram og leggja tillögu fram á næsta fundi.
2.
Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Málsnúmer 2009-02-13-215
Lögð fram drög að áformayfirlýsingu ásamt minnisblaði framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá 30.maí og minnisblaði Alta frá 1.júni.   Bæjarráð samþykkir drög að áformayfirlýsingu og felur bæjarstjóra undirskrift yfirlýsingar að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar.
3.
Framtíð félagsstarfs í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106010
Þennan lið fundarins sátu félagsmálastjóri og deildarstjóri heimaþjónustu. Framlagt minnisblað félagsþjónustusviðs frá 16.maí vegna fyrirkomulags og framtíðarsýnar félagssstarfs eldri borgara í Fjarðabyggð. Bæjarráð felur félagsþjónustusviði frekari útfærslu framtíðarsýnar og tillagna í minnisblaði og að leggja þær hugmyndir fyrir bæjarráð að nýju í lok mánaðarins. Málinu jafnframt vísað til félagsmálanefndar.
4.
Endurfjármögnun lána 2011
Málsnúmer 1103167
Endurfjármögnun lána var áður á dagskrá bæjarráðs 17.maí og bæjarstjórnar 19.maí. Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og lagði fram drög að lánasamningum. Bæjarráð samþykkir að sækja um höfuðstólslækkun á þremur erlendum lánum sveitarfélagsins hjá Íslandsbanka og veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita þau skjöl sem til þarf, svo höfuðstólslækkun geti gengið eftir, þar á meðal tvo nýja lánasamninga sem koma í  stað eldri samninga.  Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
5.
Nýting frystihússins á Stöðvarfirði undir menningarstarfsemi
Málsnúmer 1008038

Framlagt minnisblað stjórnsýslustjóra frá 6.júní. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur stjórnsýslustjóra og fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

6.
Lóð umhverfis Stöðvarfjarðarkirkju
Málsnúmer 0905091
Bréf sóknarnefndar Stöðvarfjarðarkirkju þar sem ítrekuð er ósk um nauðsynlegar framkvæmdir á lóð umhverfis kirkjuna. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfissnefndar.
7.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Kynningarfundur vegna endurskipulagningar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar verður haldinn þriðjudaginn 21.juní kl. 13:00 á skrifstofum KPMG Borgartúni 27 Reykjavík.  Bæjarstjóri og fjármálastjóri munu sækja fundinn.
8.
Uppsögn Landsvirkjunar á samningum sem snúa að ótryggri orku
Málsnúmer 1106007
Bréf Landsvirkjunar og Orkusölunnar vegna uppsagnar á samningum er snúa að ótryggri orku. Lagt fram til kynningar og vísað til mannvirkja- og umhverfissviðs.
9.
Stefnumót við Stjórnlagaráð á Austurlandi
Málsnúmer 1105192
Opinn fundur með þremur stjórnlagaþingsfulltrúum verður haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum þriðjudaginn 14. júní kl.17:00 - 22:00 undir yfirskriftinni ,,Stefnumót við Stjórnlagaráð - Landsbyggðin og stjórnsýslan"  Bæjarráð og bæjarstjóri munu sækja fundinn.
10.
AST - Fundargerðir framkvæmdaráðs
Málsnúmer 1104003
Fundargerð og minnispunktar frá 16.maí lagðir fram til kynningar.
11.
Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2011
Málsnúmer 1103022
Fundargerð nr. 787 frá 27.maí lögð fram til kynningar.
12.
Hafnarstjórn - 84
Málsnúmer 1105010F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 84 frá 31.maí lögð fram.
13.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 22
Málsnúmer 1105012F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 22 frá 30.maí lögð fram.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 14
Málsnúmer 1105003F
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 14 frá 25.maí lögð fram.