Fara í efni

Bæjarráð

250. fundur
28. júní 2011 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1104080
Þröstur Ólafsson stjórnarformaður og Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri Minjaverndar sátu þennan lið fundarins. Rætt um endurbyggingu Franska spítalans á Fáskrúðsfirði og ýmislegt er snýr að verkefninu.  Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og stjórnsýslustjóra falið að leggja fyrir bæjarráð greinargerð um Franska spítalann.
2.
Nýting frystihússins á Stöðvarfirði undir menningarstarfsemi
Málsnúmer 1008038
Framlagt uppfært minnisblað stjórnsýslustjóra frá 6.júní um skilmála og kvaðir vegna Bankastrætis 1 Stöðvarfirði.  Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði.
3.
Aðalfundur Fjarðaferðar ehf 2011 v.2010
Málsnúmer 1106131
Aðalfundur Fjarðaferða verður haldinn miðvikudaginn 29.júní kl.17:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað. Formaður atvinnu- og menningarnefndar og bæjarstjóri munu sækja fundinn.
4.
Beiðni um lán á húsnæði vegna Eistnaflugs
Málsnúmer 1106154
Beiðni Hákonar Guðröðarsonar frá 21.júní um að Fjarðabyggð útvegi sýningarhaldi, í tengslum við Eistnaflug, endurgjaldslaus afnot af gistirými. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur ferða- og menningarfulltrúa að vera hópnum innan handar um útvegun á húsnæði.
5.
Urðun sorps í Þernunesi
Málsnúmer 1106098
Bréf Fljótsdalshéraðs frá 16.júní þar sem óskað er eftir leyfi Fjarðabyggðar til að urða sorp í landi Þernuness til næstu tveggja ára. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu mannvirkjastjóra frá 24.júní og felur bæjarstjóra og mannvirkjastjóra að vinna málið áfram. 
6.
Þjóðahátíð Austfirðinga 2011
Málsnúmer 1106085
Þjóðahátíð verður haldin 24.september í Nesskóla. Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnsýslustjóra frá 24.júní um að veittur verði styrkur sem nemur leigu og þrifum í Nesskóla. 
7.
Kjaramál stjórnenda
Málsnúmer 1106183
Stjórnsýslustjóri vék af fundi. Bæjarráð samþykkir samningsbundna breytingu á launatöflu stjórnenda og fyrirkomulag frammistöðumats.
Rætt um kynningarefni sveitarfélagsins.