Bæjarráð
265. fundur
27. október 2011
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar 2012
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 25.október um að hækka gjaldskrá dreifingar hjá Rafveitu Reyðarfjarðar um 10 % frá 1. janúar 2012.
2.
Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 2012
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.október um að hækka gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, Eskifirði um 4,5 % frá 1.janúar 2012. Með því hækkar vatnsgjald í 150 kr/m3 og mælagjald í 25.000 kr/ári fyrir allt íbúðarhúsnæði. Önnur gjöld eins og tengigjöld hækka um 15 %.
3.
Gjaldskrá fjarvarmaveitu Fjarðabyggðar 2012
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.október um 10 % hækkun á gjaldskrá fyrir fjarvarmaveitur er taki gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
4.
Fjárhagsáætlun 2012 - Fræðslu,- og frístundanefnd
Þennan lið fundarins sat formaður fræðslu- og frístundanefndar og fór yfir framlagða greinargerð fræðslustjóra frá 20.október. Í greinargerð fræðslustjóra kemur fram að nokkuð vanti á að nefndin nái saman þeim fjárhagsrömmum sem henni var úthlutað. Í greinargerð koma einnig fram fjárhagsleg áhrif hinna ýmsu aðhaldsaðgerða.
5.
Fjárhagsáætlun 2012 - Hafnarnefnd
Lögð fram greinargerð framkvæmdastjóra hafnanna frá 21.október. Umfjöllun um fjárhagsáætlun ársins 2012 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2013 til 2015.
6.
Fjárhagsáætlun 2012 - Atvinnu- og menningarnefnd
Framlögð greinargerð stjórnsýslustjóra frá 6.október.
7.
Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir fjárhagsáætlun sviðsins á fundi 25.október, afgreiddi hana með áorðnum breytingum og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.
8.
Fjárhagsáætlun 2012 - Félagsmálanefnd
Frestað.
9.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir kvíaeldisstöð Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar í Fjarðarhóteli á Reyðarfirði 3.nóvember kl. 17:00. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 16.desember. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar, hafnarstjórnar og eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
10.
Launahækkanir í kjarasamningum
Minnisblað mannauðsstjóra frá 19.október vegna hækkana launa vegna kjarasamninga á árinu 2011. Í minnisblaði er sundurliðun á málaflokka en heildarkostnaðarauki ársins nemur um 77 milljónum. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2011.
11.
Opnun Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði veturinn 2011 - 2012
Minnisblað fræðslustjóra og forstöðumanns Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði frá 19.október vísað frá fræðslu- og frístundanefnd. Í minnisblaði kemur fram að ekki verður hægt að opna skíðasvæðið í Oddsskarði nema til komi aukafjárveiting frá bæjarráði. Rekstur skíðasvæðisins er þegar kominn yfir fjárheimildir, þrátt fyrir að ekkert verði opið fyrir áramót, og aukaopnun í desember myndi kosta aukalega um 1.300.000. Bæjarráð samþykkir að skíðasvæðið verði ekki opnað fyrir jól.
12.
Lánsumsókn til Ofanflóðasjóðs
Minnisblað fjármálastjóra frá 14.október vegna lánsumsóknar til Ofanflóðasjóðs vegna snjóflóðaframkvæmda 2008 - 2010. Í minnisblaði er lagt til að lántaka verði samþykkt enda er um að ræða hagkvæman lántökukost. Bæjarráð samþykkir lántöku og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2011
Fundargerð stjórnar SSA frá 18.okóber lögð fram til kynningar.
14.
Tilnefningar í nefndir á vegum SSA
Bæjarráð sammála að tilnefna Jens Garðar Helgason í samstarfsnefnd og Pál Björgvin Guðmundsson bæjarstjóra í samgöngunefnd SSA en ákveðið var að sveitarfélögin skipuðu einn fulltrúa hvert í þessar nefndir á síðasta aðalfundi SSA.
15.
Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 11.nóvember kl. 15:00
Bæjarstjóri verður aðalfulltrúi og fræðslustjóri til vara á aðalfundi Skólaskrifstofu Austurlands sem haldinn verður á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar föstudaginn 11.nóvember kl. 15:00.
16.
Lögheimili íbúa Fjarðabyggðar
Bæjarráð samþykkir tillögu að bréfi til íbúa.
17.
Samþykkt frá aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ
Bréf EBÍ frá 20.október er varðar samþykkt aðalfundar fulltrúaráðs EBÍ frá 12.október um að greiða ekki ágóðahluta á árinu 2011.
18.
Ósk um athugasemdir vegna vinnu við gerð frumvarps til breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með ósk um umsögn.
19.
Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna
Minnisblað fjármálastjóra og tillaga að breytingu á reglum um afskriftanefnd krafna hjá Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir reglur.
20.
Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Tilboð um greiðslu 50% af skuld félagsins við Fjarðabyggð. Vísað til fjármálastjóra og afgreiðslu afskriftanefndar viðskiptakrafna.
21.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Umsóknarfrestur er til 9.nóvember. Vísað til afgreiðslu hjá framkvæmdastjóra hafna.
22.
Hafnarstjórn - 90
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 90 frá 18.október lögð fram.
23.
Atvinnu- og menningarnefnd - 19
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 19 frá 19.október lögð fram.
24.
Fræðslu- og frístundanefnd - 18
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 18 frá 19.október lögð fram.
25.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 29
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 29 frá 25.október lögð fram.