Fara í efni

Bæjarráð

270. fundur
5. desember 2011 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1102004
Þennan lið fundarins sátu slökkviliðsstjóri og fjármálastjóri. Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra um sjúkraflutninga og tillögur Alcoa Fjarðaáls að hækkun á samningstengdum greiðslum til Slökkviliðs Fjarðabyggðar.  Farið yfir drög að svörum til Alcoa Fjarðaáls vegna þátttöku í rekstri Slökkviliðs Fjarðabyggðar og drög að svörum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands vegna sjúkraflutninga. 
2.
66.mál til umsagna um breytingar á hafnarlögum
Málsnúmer 1111116
Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Bæjarráð felur hafnarstjórn fullnaðarumsögn um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum - 66.þingmál.
3.
85. mál til umsagnar um frumvarp til laga um hafnir
Málsnúmer 1111123
Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins. Bæjarráð felur hafnarstjórn fullnaðarumsögn um frumvarp til laga um hafnir - 85.þingmál. 
4.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Málsnúmer 1103025
Framkvæmdastjóri hafnanna sat þennan lið fundarins og fór yfir drög að umsögn vegna starfsleyfis Laxa.  Málið verður aftur á dagskrá næsta fundar bæjarráðs.
5.
Umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi
Málsnúmer 1111128
Framlögð beiðni Matvælastofnunar, frá 24.nóvember, um umsögn um umsókn Hafskeljar ehf. um ræktunarleyfi fyrir krækling í Mjóafirði.  Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti ræktunarleyfi fyrir Hafskel ehf. og felur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn fullnaðarafgreiðslu.
6.
Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Málsnúmer 0903114
Þennan lið fundarins sat Einar Rafn Haraldsson forstjóri HSA.  Rætt um fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Austurlands á komandi ári og hugsanleg áhrif þeirra.