Fara í efni

Bæjarráð

276. fundur
16. janúar 2012 kl. 08:30 - 10:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Nýjir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106064
Upplýsingar um lögheimilisflutninga íbúa að og frá Fjarðabyggð tímabilið 1. desember 2010 til 1. desember 2011 lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í atvinnu- og menningarnefnd.
2.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Málsnúmer 0903017
Verkkaupasamningur milli framkvæmdaaðila og verkkaupa, Framkvæmdasýslu ríkisins og Fjarðabyggðar, lagður fram til samþykktar.  Ákvörðun um töku tilboðs í byggingu hjúkrunarheimilisins var tekin á fundi bæjarráðs nr. 268. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
3.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Tillaga um endurskoðun ákvörðunar vegna reglna um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2012. Bæjarráð samþykkir að viðmiðunarfjárhæðir verði óbreyttar á milli áranna 2011 og 2012 og greinar 5. og 8. falli niður í reglunum.
4.
Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa
Málsnúmer 1112028
Lögð fram drög að reglum um styrki til endurgerðar gamalla húsa. Bæjarráð vísar reglunum til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
5.
Brunavarnir í Nesskóla
Málsnúmer 1201099
Fram lagt bréf frá Foreldrafélagi Nesskóla vegna brunavarna í Nesskóla. Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
6.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Málsnúmer 1110184
Þennan lið dagskrár sat framkvæmdastjóri hafna. Lagðar fram breytingar á reglugerð er varðar byggðakvóta sem úthlutað var til Stöðvarfjarðar og Mjóafjarðar fyrir árið árið 2012. Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
7.
Málefni Eignarhaldsfélagsins Hrauns.
Málsnúmer 1201144
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Farið yfir fjárhagsleg málefni Eignarhaldsfélagsins Hrauns. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.
8.
Breytingar á nefndarskipan Framsóknarflokks í atvinnu-og menningarnefnd
Málsnúmer 1201155

Sigrún Júlía Geirsdóttir kemur inn sem aðalmaður í atvinnu- og menningarnefnd í stað Þórönnu Lilju Snorradóttur og Daníel Arason verður varamaður í stað Svanhvítar Aradóttur.  Einar Birgir Kristjánsson verður varaformaður atvinnu- og menningarnefndar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

9.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 20 frá 10.janúar lögð fram til kynningar.
10.
Fræðslu- og frístundanefnd - 21
Málsnúmer 1201005F
Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri. Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 21 frá 11. janúar lögð fram til kynningar.
Vegna 4.liðar í fundargerð áréttar bæjarráð að vísað er til gjaldskrár fyrir grunnskóla í Fjarðabyggð þar sem fram kemur "viðkomandi hópur hafi ekki kost á gistingu annars staðar í bænum."