Bæjarráð
278. fundur
30. janúar 2012
kl.
08:30
-
10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aðalfundur Samorku 17.febrúar 2012 - boð til veitna í Fjarðabyggð
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Fram lagt til kynningar fundarboð aðalfundar Samorku 17. febrúar n.k.
Bæjarráð samþykkir að mannvirkjastjóri fari með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
2.
Endurnýjaður leigusamningur vegna urðunar í landi Þernunes
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Fram lagður endurnýjaður samningur um leigu lands fyrir urðun úrgangs í landi Þernuness.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
3.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Löxum fiskeldi ehf. hefur verið veitt starfsleyfi til framleiðslu á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Lagðar fram athugasemdir við starfsleyfistillögu og viðbrögð umhverfisstofnunar við þeim.
Vísað til eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarnefndar og atvinnu- og menningarnefndar.
4.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
Fundargerð framkvæmdaráðs Sambands sveitarfélaga frá 22. janúar lögð fram til kynningar.
5.
Reglur vegna endurgerðar gamalla húsa
Reglurnar voru teknar fyrir á 34. fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Greinargerð forstöðumanns stjórnsýslu lögð fram.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
6.
Endurskoðun á umferðarsamþykkt
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Bréf Sýslumannsins á Eskifirði lagt fram til kynningar þar sem gerðar eru athugasemdir við umferðarsamþykkt.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til vinnslu.
7.
Fundir Ungmennaráðs Fjarðabyggðar 2011-2012
Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri.
Fyrirhugaður er fundur ungmennaráðs og bæjarstjórnar 16. febrúar n.k. þar sem farið verður yfir ýmiss mál ungmenna. Farið yfir minnisblað bæjarritara um fundarsköp bæjarstjórnar. Rætt um uppsetningu og fundarform.
Byggt verður á funarstjórn bæjarstjórnarfundar og fundurinn tekin upp. Fundurinn verður í beinu framhaldi af fundi bæjarstjórnar og hefst kl. 17:00.
8.
Bókun frá SSA vegna framtíðar Reykjavíkurflugvallar
Fram lagt til kynningar bréf Sambands sveitarfélaga Austurlandi um framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Bæjarráð tekur undir bókun sambandsins og undirstrikar mikilvægi flugvallarins.
9.
Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigs
Fram lagt til kynningar efni málsþings um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem haldið verður 10. febrúar n.k.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir tekur þátt í pallborðsumræðum.
10.
Afmælishátíð 23-25.mars 2012
Fram lagt boð frá vinabæ Fjarðabyggðar í Finnlandi um þátttöku í afmælishátíð sem haldin verður 23. til 25. mars n.k.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að leggja fram tillögu að sendinefnd sem fari á vinabæjarmótið.
11.
Reglur um framlög til stjórnmálasamtaka
Fram lagðar endurskoðaðar reglur að framlögum til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir drög að reglum fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 34
Fundargerð fram lögð til kynningar.
13.
Atvinnu- og menningarnefnd - 24
Fundargerð fram lögð til kynningar.