Bæjarráð
Samkomulag þetta gildir þar til nýr þjónustusamningur hefur verið gerður um hliðstæða þjónustu með hliðsjón af nýju skipulagi stoðkerfisins á Austurlandi sem til stendur að gangi í gildi vorið 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bæjarráð samþykkir tímabundna framlengingu samningsins og felur bæjarstjóra undirritun hans.Í fundargerð frá 184. fundi bæjarráðs þann 9. febrúar 2010 var Björgvini Valdimarssyni forstöðumanns fjármála falin prókura á bankareikninga.
Í 4. mlgr. 55. gr. laga nr. 138/2011 (Sveitastjórnarlög)segir: "Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarfélags. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar.
Til áréttingar og með vísan í sveitastjórnarlög og samþykktir sveitarfélagsins leggur bæjarráð til við bæjarstjórn, að hún samþykki þá tillögu bæjarstjóra að Björgvin Valdimarsson kt. 041170-3529, fjármálastjóri, fari með sjálfstæða prókúruheimild f.h. sveitarfélagsins sem nái til allra banka- og verðbréfareikninga sveitarfélagsins og stofnanna þess.
Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands og heilsugæsluþjónustu í Fjarðabyggð tekin til umræðu.
Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að Velferðarráðuneytið láti þegar í stað af hendi skýrslu sem ráðuneytið lét vinna að beiðni HSA um framtíðarsýn fyrir stofnunina til að hægt sé að kynna sér efni hennar. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla um skýrsluna á síðustu dögum virðist vera um algeran trúnaðarbrest milli HSA og Fjarðabyggðar að ræða en sveitarfélagið hefur staðið þétt við stofnunina síðustu ár og unnið að fullum trúnaði með henni. Því skýtur það skökku við að hluti stjórnar HSA sé vinnandi leynt og ljóst gegn hagsmunum heilbrigðisþjónustu í Fjarðabyggð. Þá vill bæjarráð Fjarðabyggðar einnig fá fund með velferðarráðherra til að ræða framtíð samskipta við HSA. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Einnig óskar bæjarráð eftir við bæjarstjórn að álykta um frekari form samskipta við HSA reynist efni skýrslunnar á þá lund sem fjallað hefur verið um.