Fara í efni

Bæjarráð

284. fundur
12. mars 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.- 23.mars 2012
Málsnúmer 1203025

Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins 23. mars n.k.   

Bæjarráð tilnefndir Jens Garðar Helgason sem fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfundinn.

2.
Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 1202154
Fram lagt til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga.
3.
Fjarðarferðir 2012
Málsnúmer 1203015
Fram lagt til kynningar bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar um ferjusiglingar í Mjóafjörð.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra sem fundar með Sigfúsi.
4.
Fjarvistastefna
Málsnúmer 1203029

Fram lögð til kynningar drög að fjarvistarstefnu fyrir starfsmenn Fjarðabyggðar.  Bæjarritari kynnti stefnuna.

Bæjarráð samþykkir að vísa stefnunni til frekari vinnslu og kynningar hjá stjórnendum sveitarfélagsins.

5.
Forkaupsréttur að lóð nr.4 við Hraun
Málsnúmer 1203024
Fram lagt erindi frá Eimskipum hf. þar sem óskað er eftir að hafnarsjóður falli frá forkaupsrétti á eignum á lóð nr. 4 við Hraun en félagið hefur skrifað undir kaupsamning um eignina.
Bæjarráð samþykkir að hafnarsjóður nýti ekki forkaupsrétt.  Vísað til hafnarstjórnar til staðfestingar.
6.
Fundarboð um niðurfærslu stofnsjóðs
Málsnúmer 1203028

Fram lagt erindi frá Sláturfélagi Austurlands þar sem kynnt er tillaga aðalfundar félagsins um að stofnfé félagsins sé fært niður og inneign í B-stofnsjóði lækki um 76%. 

Bæjarráð samþykkir tillögur aðalfundarins um lækkun b-stofnsjóðs.

7.
Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
Málsnúmer 1202133

Fram lagt bréf frá Póst- og fjarskiptastofnunar.  Óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar vegna lokunar póstafgreiðslu Íslandspósts á Mjóafirði. 

Bæjarráð felur bæjarritara að senda umsögn.

8.
Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins
Málsnúmer 1203020
Fram lagðar upplýsingar og tillögur sem nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins hefur lagt fram í skýrslu.  Til kynningar.
9.
Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Málsnúmer 1202032
Fram lagðar til kynningar umsagnir Sambands sveitarfélaga Austurlandi um samgönguáætlun 2011 til 2014 og samgönguáætlun 2011 til 2022.
10.
Umskipunarhöfn á Íslandi
Málsnúmer 1203037

Fram lagt bréf Guðmundar H Bjarnasonar um siglingaleið yfir Norðurpólinn og umskipunarhöfn á Íslandi.  Er verið að leita eftir aðkomu sveitarfélaga að málinu.

Bæjarráð telur ekki tímabært að taka þátt í verkefninu.

Bæjarráð vísar jafnframt erindi til umsagnar í atvinnu- og menningarnefnd og hafnarstjórn.

11.
Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Málsnúmer 0906022
Fram lagt bréf Olíudreifingar þar sem sótt er um lóð og athafnasvæði á Reyðarfirði fyrir olíurannsóknir. 
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umræðu í atvinnu- og menningarnefndar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar. 
12.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2010 - 2014
Málsnúmer 1110035

Fjarðalistinn (L-listi) gerir eftirfarandi breytingu á skipan í hafnarstjórn: Guðrún Óladóttir tekur sæti Ingólfs Sigfússonar sem varamaður í stjórninni.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

13.
Hafnarstjórn - 96
Málsnúmer 1203002F
Fundargerð frá 6. mars fram lögð til kynningar.
14.
Atvinnu- og menningarnefnd - 27
Málsnúmer 1203001F
Fundargerð frá 8. mars lögð fram til kynningar.