Bæjarráð
286. fundur
27. mars 2012
kl.
16:30
-
18:00
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Rekstur knattspyrnudeildar UMF Leiknis
Fram lagt bréf frá knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Leiknis þar sem skorað er á bæjarstjórn að mismuna ekki íþróttafélögum í sveitarfélaginu með úthlutun styrkja.
Bæjarráð óskar eftir að fá formenn Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar og Ungmennafélagsins Leiknis á fund bæjarráðs 10. apríl n.k.
Vísað til umræðu í fræðslu- og frístundanefnd.
2.
Siðareglur
Framlögð drög að siðareglum fyrir kjörn fulltrúa og stjórnendur.
Bæjarráð fjallar um reglurnar og vísar afgreiðslu þeirra til næsta fundar.
3.
Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, atvinnu- og menningarnefnd ásamt hafnarstjórn hafa tekið vel í erindið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og vísar til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins
Framlögð til kynningar skýrsla nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
5.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Fiskistofa hefur gefið út rekstrarleyfi til Laxa ehf. vegna laxeldis í sjó í Reyðarfirði. Leyfið gildir til 15.mars 2022. Atvinnu- og menningarnefnd lagði til við bæjarráð á fundi 22.mars, að leitað verði allra leiða til að tryggja að uppfyllt verði ákvæði, sem Fjarðabyggð lagði til að sett yrðu í rekstrarleyfi en Fiskistofa hafnaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir athugasemdum sveitarfélagsins og leita leiða til að uppfyllt verði ákvæði þau sem sett voru fram vegna útgáfu rekstrarleyfisins.
6.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Atvinnu- og menningarnefnd óskar eftir við bæjarráð að settur verði aukinn kraftur í að laða nýja íbúa til Fjarðabyggðar og leitað verði allra leiða í því sambandi. Framlagðar hugmyndir Andrésar Elíssonar.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir Andrésar og felur bæjarstjóra að fylgja þeim eftir við Íbúðalánasjóð. Bæjarráð óskar jafnframt eftir að atvinnu- og menningarnefnd leggi fram hugmyndir sem aukið gæti kraftinn í að laða að nýja íbúa til sveitarfélagsins.
7.
Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
Fram lagt þingskjal nr. 1052, frumvarp til laga um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir að fá álitsgerð frá KPMG-endurskoðun á áhrif frumvarpsins á atvinnulíf í Fjarðabyggð.
8.
Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 29.mars
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Jón Björn Hákonarson sem aðalmann í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar og Valdimar O Hermannsson til vara.
9.
Atvinnu- og menningarnefnd - 28
Fundargerð fram lögð til kynningar.
10.
Hafnarstjórn - 97
Fundargerð nr. 97 frá 26.3.2012 lögð fram til kynningar.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 39