Bæjarráð
Fram lagt bréf Öryrkjabandalags Íslands vegna aðgengis fatlaðra að sundlaug í Neskaupstað.
Málið kynnt. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur á liðnum vikum kynnt sér efni frumvarpa til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjalds og velt fyrir sér áhrifum þeirra á sveitarfélagið. Meðal annars hefur bæjarráð rætt við forsvarsmenn fyrirtækja í sjávarútvegi innan Fjarðabyggðar og fulltrúa annarra sveitarfélaga. Einnig var horft til ályktunar stjórnar Afls starfsgreinafélags. Þá var ákveðið að fá KPMG til að vinna skýrslu um áhrif þessa frumvarpa á Fjarðabyggð og á grunni hennar var veitt umsögn um þau til Atvinnuvegarnefndar Alþingis þann 20.apríl síðastliðinn. Samhliða þeirri umsögn ályktar bæjarráð hér með um þessi frumvörp og mótmælir þeim báðum harðlega. Ljóst er þegar áhrif þeirra eru skoðuð muni þau hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulífið í Fjarðabyggð og sveitarfélagið um leið. Með skerðingu aflaheimilda og tilfærslu á þeim mun það óhjákvæmilega leiða til fækkunar starfa í sveitarfélaginu og draga úr fjárfestingu í greininni og afleiddri þjónustu. Bæjarráð ítrekar þá afstöðu sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar setti fram í bókun þann 9.júní 2011 að mikilvægt sé að stjórnvöld og hagsmunaaðilar setjist aftur að sáttarborði og vinni að frumvarpi um sjávarútvegsmál sem styrki greinina til framtíðar, sníði þá agnúa af kerfinu sem hvað mest eru umdeildir með hagsmuni íslensks samfélags að leiðarljósi. Þá áréttar bæjarráð einnig að tillögur "sáttanefndarinnar" svokölluðu hafi verið skref í rétta átt þar sem allir hagsmunaaðilar náðu niðurstöðu um þær breytingar sem hægt er að gera og yrði í sátt við þjóðina.