Fara í efni

Bæjarráð

292. fundur
30. apríl 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1101233
Fram lögð tillaga um skipulag stjórnunar í sameiginlegum leik- og grunnskóla á Stöðvarfirði.  Tillagan gerir ráð fyrir því að stjórnun stofnunar verði falin núverandi skólastjóra grunnskóla.
Bæjarráð samþykkir tillögu.
2.
Beiðni um lagfæringu á veg við Lyngbakka 4
Málsnúmer 1204116

Fram lagt bréf Sigtryggs S. Reynaldssonar þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð annist lagfæringar á götu við Lyngbakka 4 í Neskaupstað.
Vísað til framkvæmdasviðs og málið skoðist með tilliti framkvæmdaáætlunar 2012.

3.
Mismunum í úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðbyggð
Málsnúmer 1204122

Framlagt bréf Blakdeildar Þróttar í Neskaupstað þar sem fjallað er um úthlutanir íþróttastyrkja til félaga.  Vakin athygli á starfsemi blakdeildarinnar og mismun sem deildin telur vera í styrkveitingum til félaga.  Þá er farið fram á aukastyrkveitingu til deildarinnar til jafnræðis við aðrar íþróttagreinar.
Búið er að úthluta styrkjum til íþróttamála samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2012.  Stefnt er fara yfir reglur um úthlutun á íþróttastyrkjum fyrir árið 2013. Bæjarráð býður formönnum Þróttar og blakdeildar á fund 14. maí n.k.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.

 

4.
Framkvæmdir við húsnæðisúrræði í málaflokki fatlaðs fólks - áætlanagerð sveitarfélaga og þjónustusvæða
Málsnúmer 1204128
Fram lagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 26.apríl þar sem óskað er eftir svörum um framkvæmdaáætlanir Fjarðabyggðar í búsetumálum fatlaðs fólk. Óskað er eftir svari fyrir 11.maí.
Vísað til umsagnar félagsmálanefndar, félagsmálastjóra og mannvirkjastjóra.  Leggja þarf umsögn fyrir bæjarráð 7. maí n.k. 
5.
Ársfundur Starfsendurhæfing Austurlands 2012
Málsnúmer 1204101
Fram lögð árskýrsla og ársreikningur StarfA fyrir árið 2011 til kynningar.
6.
Stofnfundur Austfirskra stoðstofnana AST 8.maí 2012
Málsnúmer 1204115
Boðað er til stofnfundur Austfirskra stoðstofnana - AST - í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði 8. maí 2012 n.k. kl. 13:00.
Bæjarráð felur bæjarritara og forstöðumanni stjórnsýslu að yfirfara gögn sem tengjast stofnfundinum.  Vísað til umræðu í atvinnu- og menningarnefnd.
7.
Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2012
Málsnúmer 1204010
Fundargerð stjórnarfundar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar frá 16.apríl lögð fram til kynningar ásamt ársreikningi sjóðsins fyrir árið 2011.
8.
Íbúafundir og viðtalstímar bæjarfulltrúa
Málsnúmer 1204008
Bæjarráð samþykkir að opnir fundir um umhverfismál verði haldnir í viku 20 á Norðfirði og Reyðarfirði. 
9.
Eyðilegging skóga vegna snjóflóðamannvirkja
Málsnúmer 1201218
Fram lagt bréf Skógræktarfélags Íslands en það var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 23. janúar 2012.
Vísað til afgreiðslu mannvirkjastjóra.
 
10.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2012
Málsnúmer 1105180
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Þróunarfélags Austurlands frá 27. apríl s.l. ásamt tilnefningum í stjórn AST og fagráð.
11.
Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Málsnúmer 1110173
Lagður fram til afgreiðslu kaupsamningur um hluti í Fjarðaferðum ehf. Bæjarráð samþykkir kaupsamning fyrir sitt leyti.  Bæjarráð samþykkir jafnframt að hlutafé verði fært niður sem nemur 1.410.000 en hluturinn er 6,9%.  Jafnframt hnykkir bæjarráð á því að leysa verði samgöngumál á sjó við Mjóafjörð.  Bæjarráð mun halda fund í Mjóafirði í maí og taka m.a. málefni Mjóafjarðar til umræðu á þeim fundi.
12.
Fræðslu- og frístundanefnd - 25
Málsnúmer 1204011F
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar nr. 25 frá 25.apríl lögð fram.
Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2. maí n.k. Bæjarráð samþykkir að fela varaformanni félagsmálanefndar Gunnari Ragnari Jónssyni að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar á stjórnarfund Skólaskrifstofu Austurlands í fjarveru Páls Björgvins Guðmundssonar bæjarstjóra.