Fara í efni

Bæjarráð

316. fundur
12. nóvember 2012 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Málsnúmer 1208011
Tekin lokumræða um fjárhagsáætlunina.
Farið yfir starfsáætlun fræðslu- og frístundanefndar.  Bæjarráð samþykkir að rammi íþróttamála verði aukinn sem nemur 2.000.000 kr. til hækkunar íþróttastyrkja.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að rammi til íþróttamála verði aukinn um 325.000 til aukningar opnunartíma sundlaugar á Fáskrúðsfirði.  Þá verði opnunartími sundlauga á Eskifirði og Neskaupstað rýmkaður vegna reglugerðarbreytingar en sú breyting rúmast innan fjárhagsáætlunar 2013. Breyting á opnunartíma sundlauga miðast við 1. janúar 2013.
Þá samþykkir bæjarráð að skoða forsendur endurfjármögnunar á leigusamningum Fjarðabyggðar. 
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætluninni ásamt starfsáætlunum í síðari umræða í bæjarstjórn 15. nóvember n.k. og vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
2.
Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1102004
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri og slökkviliðsstjóri.
Umræður um drög að samning Fjarðabyggðar og Alcoa Fjaraáls um slökkvilið Fjarðabyggðar.
Bæjarráð felur mannvirkjastjóra og slökkviliðsstjóra að vinna áfram að samningi og leggja fyrir bæjarráð þegar hann er tilbúinn.
3.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Bæjarráð
Málsnúmer 1208101
Lagt fram minnisblað bæjarritara (merkt trúnaðarmál) um stöðu könnunarviðræðna við Nýherja um miðlæga þjónustu.
Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu.
4.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Barnaverndarnefnd
Málsnúmer 1208104
Umræður um barnaverndarmál og skipulag á starfsemi.
Bæjarráð samþykkir óbreytt fyrirkomulag og felur bæjarstjóra að útfæra það nánar með félagsmálastjóra.
5.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2014 - 2016
Málsnúmer 1210138
Fram lögð tillaga um breytingu á liðnum menningarmál samkvæmt minnisblað bæjarstjóra þar sem útgjöld hækka frá árinu 2014.
Bæjarráð samþykkir að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun með breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k.. 
6.
Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 til 2023
Málsnúmer 1210139
Lokaumfjöllun um tíu ára fjárhagsáætlun.
Bæjarráð vísar tíu ára fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k.. 
7.
Öldungamót í blak í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1211019
Fram lagt bréf stjórnar blakdeildar Þróttar þar sem óskað er viðræðna um lausnir til að öldungamót í Fjarðabyggðahöllinni.
Bæjarráð felur mannvirkjastjóra, fræðslustjóra og forstöðumanni íþrótta- og tómstundamála að ræða við fulltrúa blakdeildarinnar og skila greinargerð til bæjarráðs.  Málið jafnframt sent fræðslu- og frístundanefnd til upplýsinga. 
8.
750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1101234
Bæjarráð samþykkir að framkvæmd við ofanflóðavarnir á Fáskrúðsfirði fari í útboð og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Beiðni um að sveitarfélögin gerist meðumsækjendur - Franski spítalinn
Málsnúmer 1211023
Fram lögð beiðni frá Minjavernd um að Fjarðabyggð verði meðumsækjandi að IPA verkefni vegna Franska spítalans á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður.  Umsjón með verkefninu falin forstöðumanni safnastofnunar.
10.
Drög að samstarfsyfirlýsingu og stutt lýsing á RICE verkefninu
Málsnúmer 1211051
Fram lögð drög að verkefni til stuðnings samfélögum/byggðakjörnum þar sem viðvarandi fækkun íbúa hefur verið um árabil.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður. Umsjón verkefnis verði á höndum stjórnsýslu- og þjónustusviðs.
11.
IPA verkefni með áherslu á innflytjendur
Málsnúmer 1210193
Fram lögð drög að verkefni til eflingar þjónustu við innflytjendur í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu enda felist ekki í því beinn kostnaður. Umsjón verkefnis verði á höndum fjölskyldusviðs.
12.
Miðstöð innanlandsflugs til umsagnar,120.mál(hlutverk Reykjavíkurflugvallar)
Málsnúmer 1211050
Fram lagt til kynningar frumvarp til laga um að miðstöð innanlandsflugs á Íslandi verði staðsett nærri nauðsynlegri þjónustu í Reykjavík.
Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að móta umsögn um frumvarpið í samráði við bæjarstjóra.  Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
 
13.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106064
Fram lagt yfirlit um íbúaþróun í Fjarðabyggð síðastliðna mánuði.
14.
Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 1111090
Fram lögð fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 28. september 2012
15.
Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 1209087
Fram lagðar fundargerðir frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
16.
Styrkbeiðni 2013 frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1211049
Fram lögð beiðni Golfklúbbs Fjarðabyggðar um uppbyggingarstyrki vegna uppbyggingar á aðstöðu félagsins á golfvellinum á Reyðarfirði.
Bæjarráð mun ekki veita uppbyggingarstyrk til golfvallar á Reyðarfirði en erindið verður tekið upp við afgreiðslu styrkja til íþróttafélag.  Vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
17.
Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Málsnúmer 1201079
Fram lögð umsögn mannvirkjastjóra og hafnarstjóra vegna málsins.  Umsögnin hefur fengið umfjöllun í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
18.
Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi.
Málsnúmer 1211036
Fram lögð styrkbeiðni frá Landsbyggðin lifi vegna reksturs á starfsemi samtakanna.
Bæjarráð getur ekki veitt styrk til samtakanna þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar.
19.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
Málsnúmer 1207043
Fram lagt yfirlit yfir stöðu framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðra.
Bæjarráð vísar framkvæmdaáætlun til umfjöllunar félagsmálanefndar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og fræðslu- og frístundanefndar og til skoðunar hjá hlutaðeigandi sviðsstjórum og bæjarstjóra.
20.
Innflytjendamál-bréf til þjóðskrár
Málsnúmer 1211053
Fram lagt bréf til Þjóðskrár þar sem innflytjendateymið á Austurlandi gerir athugasemdir við drátt á afgreiðslu umsókna um kennitölur einstaklinga.
Bæjarráð tekur undir athugasemdir innflytjendateymisins og hvetur Þjóðskrá til að flýta afgreiðslu umsókna.
21.
Beiðni um opnun skíðasvæðis í Oddskarði
Málsnúmer 1211066

Fram lögð beiðni skíðafélagsins um að skíðasvæðið í Oddsskarði verði opnað sem fyrst og verði opið fram í miðjan desember.
Bréfinu vísað til fræðslustjóra til skoðunar og kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

 

 

22.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 50
Málsnúmer 1211003F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 50 lögð fram til kynningar.
23.
Hafnarstjórn - 106
Málsnúmer 1211002F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 lögð fram til kynningar.
Mannvirkjastjóri fór yfir framkvæmdir við byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Eskifirði.