Fara í efni

Bæjarráð

435. fundur
13. júlí 2015 kl. 12:30 - 00:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Jens Garðar Helgason Formaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Jón Björn Hákonarson Aðalmaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar
Dagskrá
1.
Norðfjörður - tunna á enda grjótgarðs
Málsnúmer 1502047
Fundargerð frá opnun tilboða í gerð tunnu á skjólgarð Norðfjarðarhafnar dagsett 8. júlí 2015. Í verkið bárust tvö tilboð, frá Ísar ehf og Hérðasverki ehf. Lægra tilboðið átti Héraðsverk upp á 36,5 millj.kr. eða 110,4% af kostnaðaráætlun sem var 31,1 millj.kr. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
2.
Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
Málsnúmer 1502053
Framlögð til kynningar fundargerð 829. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3.júlí.
3.
Hafnarstjórn - 153
Málsnúmer 1507002F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. júlí sl. samþykkt í umboði bæjarstjórnar.
Guðmundur Bjarnason fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar lést 11.júlí sl. Guðmundur var fyrsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar á árunum 1998 - 2006. Áður hafði Guðmundur verið bæjarstjóri í Neskaupstað frá 1991. Bæjarráð vottar Klöru Ívarsdóttur eftirlifandi eiginkonu Guðmundar og fjölskyldu hans, innil