Sorphirða fellur niður vikuna 1.-5. desember vegna breytinga. Frekari upplýsingar hér

Fara í efni

Bæjarráð

632. fundur
1. október 2019 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnlaugur Sverrisson embættismaður
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
Málsnúmer 1904128
Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun ársins 2020.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019 fyrir málaflokka 21, 13, 07 og 03
Málsnúmer 1904138
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra yfir málaflokk heilbrigðismála og tillaga hans að breytingu á framsetningu hluta málaflokks heilbrigðismála með yfirfærslu í málaflokk félagsmála.
3.
Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 1904033
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júlí 2019 og skatttekjur og launakostnað janúar - ágúst 2019.
4.
Endurnýjun húsnæðis Uppsala
Málsnúmer 1904082
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið. Farið yfir nauðsynlegar framkvæmdir á hjúkrunarheimilinu Uppsölum, lögð fram kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og drög að bréfi til Heilbrigðisráðuneytisins vegna þátttöku í framkvæmdinni. Fjármálastjóra falin afgreiðsla málsins.
5.
Ungt Austurland - beiðni um styrk
Málsnúmer 1909122
Félagið Ungt Austurland óskar eftir styrk að upphæð 507.000 kr. frá Fjarðabyggð vegna starfsemi á komandi vetri. Umbeðin styrkupphæð er ákveðin í samræmi við íbúafjölda sveitarfélagsins. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanni menningarstofu að funda með forsvarsmönnum félagsins og fara yfir verkefni næsta árs. Niðurstaða þess fundar verði kynnt bæjarráði.
6.
Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
Málsnúmer 1908051
Bréf landeigenda á Óseyri í Stöðvarfirði er varðar lausagöngu fjár í landi Óseyrar Stöðvarfirði, lausafjárganga fjár í Stöðvarfirði og lausafjárgöngu í Fjarðabyggð. Lagt fram til kynningar en erindið hefur verið tekið fyrir í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og vísað til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
7.
Samstarfstækifæri í Póllandi
Málsnúmer 1909115
Erindi sambandsins er varðar samstarfstækifæri við sveitarfélög í Póllandi. Bæjarstjóra falið að kanna erindið og forsendur þess betur.
8.
Tré lífsins - minningagarðar
Málsnúmer 1909128
Kynning á minningagörðum og frumkvöðlaverkefninu Tré lífsins og hvort áhugi sé fyrir að slíkur minningagarður verði opnaður í Fjarðabyggð. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
9.
Forkaupsréttur að Áka í Brekku - 2652
Málsnúmer 1909136
Beiðni um yfirlýsingu þess efnis að sveitarfélagið hyggist ekki nýta forkaupsrétt á bátnum Áka í Brekku SU 60 sem seldur var frá Breiðdalsvik fyrir nokkru. Bæjarráð mun ekki nýta forkaupsrétt að bátnum.
10.
101.mál til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög),
Málsnúmer 1909142
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög), 101. Undirritaðar umsagnir berist eigi síðar en 10. október. Bæjarstjóra falið að yfirfara frumvarpið.
11.
Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019
Málsnúmer 1910004
Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 2.október á Hilton Reykjavík Nordica. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
12.
Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2019
Málsnúmer 1910005
Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum verður haldinn 4.október á Hilton Reykjavík Nordica. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
13.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 17
Málsnúmer 1909022F
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 frá 23.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
14.
Safnanefnd - 11
Málsnúmer 1909013F
Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 243
Málsnúmer 1909027F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 243 frá 30.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.