Fara í efni

Bæjarráð

807. fundur
24. júlí 2023 kl. 08:30 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Verðfyrirspurn vegna sundakstur frá Reyðarfirði til Eskifjarðar 2023-2024
Málsnúmer 2306120
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur vegna sundkennslu barna í Grunnskóla Reyðarfjarðar á Eskifirði. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
2.
Verðfyrirspurn vegna akstur með nemendur í 9. og 10. bekk í VA haustið 2023
Málsnúmer 2306105
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur með nemendur í 9. og 10. bekk í Verkmenntaskóla Austurlands haustið 2023. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
3.
Verðfyrirspurn vegna íþróttaakstur Eskifjarðarskóla í Íþróttamistöð Reyðarfjarðar
Málsnúmer 2306090
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í akstur vegna íþróttakennslu barna í Eskifjarðarskóla á Reyðarfirði. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
4.
Verðfyrirspurn vegna skólaakstur nemenda milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar 2023-2024
Málsnúmer 2306088
Framlagt tilboð í samræmi við verðfyrirspurn í skólaakstur nemenda milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar skólaárið 2023 - 2024. Einungis eitt tilboð barst og er lagt til að ganga til viðræðna við bjóðanda á grunni tilboðsins og verðfyrirspurnarinnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í aksturinn og felur bæjarstjóra að undirrita samning þar um.
5.
Kaupsamningur Eyji NK-4
Málsnúmer 2307079
Framlagður kaupsamningur Eyji NK-4 vegna fyrirspurnar um hvort sveitarfélagið nýti sér lögboðinn forkaupsrétt að bátnum en hann er seldur með aflaheimildum á sæbjúgum.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Eyji NK-4 með vísan til umboðs bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
6.
Römpum upp Ísland
Málsnúmer 2307101
Framlagt minnisblað um verkefnið römpum upp Ísland og verkefni sem unnið verður að í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og felur framkvæmda- og umhverfissviði útfærslu þess ásamt upplýsingafulltrúa. Kostnaði við hlutdeild Fjarðabyggðar mætt af liðnum óráðstafað 21-690 en hann nemur um 850.000 kr.
7.
Bréf til Bæjarráðs
Málsnúmer 2307074
Framlagt bréf frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar um viðhalds- og endurbótaverkefni sem óskað er eftir að hugað verði að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
Bæjarráð vísar erindi til mannvirkja- og veitunefndar og fjárhagsáætlunargerðar ársins 2024.
8.
Stjórnsýslukæra
Málsnúmer 2307081
Framlagður tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu vegna stjórnsýslukæru frá Ívari Ingimarssyni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara stjórnsýslukæru.
9.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Málsnúmer 2306063
Framlagt bréf frá Málflutningsstofu Snæfellsness vegna ágangs búfjár.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar fjallskilanefndar.
10.
Drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 Mál nr 1122023
Málsnúmer 2306081
Farið yfir umsögn Fjarðabyggðar vegna samgönguáætlunar fyrir árin 2024 til 2038.
11.
Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
Málsnúmer 2305266
Farið yfir málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar
12.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 10
Málsnúmer 2307006F
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá 12. júlí.
Bæjarráð staðfestir fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
Bókun bæjarráð um strandveiðar. Bæjarráð telur að núverandi fyrirkomulag strandveiða sé til þess fallið að mismuna strandveiðisjómönnum eftir landsvæðum eins og bersýnilega hefur komið í ljós frá því að nýjar reglur tóku gildi. Vegna núverandi fyrirkomulags var minnsti hluti úthlutaðs kvóta til strandveiða sóttur á svæði C. Bæjarráð hvetur matvælaráðherra til að ljúka endurskoðun á lögum um strandveiðar til að tryggja aukið jafnræði á milli svæða.