Fara í efni

Bæjarráð

878. fundur
13. janúar 2025 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025
Málsnúmer 2409205
Lögð fyrir uppfærð drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2025 til 2034.
Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fjármálastjóra falið að gera lítilsháttar breytingar í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Bréf ráðuneytisins vegna kvartana um ágangsfé
Málsnúmer 2501018
Framlagt til kynningar bréf innviðaráðuneytisins varðandi afgreiðslu þess á kvörtunum og stjórnsýslukærum vegna lausagöngu búfjár.
3.
Túngata 11b breyting á lóðarmörkum
Málsnúmer 2409012
Eigendur Túngötu 11b, Eskifirði bjóða Fjarðabyggð til sölu hluta af eingarlóð sinni vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir Lambeyrarár.
Bæjarráð felur bæjarritara að fara yfir málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
4.
Móttaka nýrra íbúa
Málsnúmer 2501057
Fjallað um móttöku nýrra íbúa.
Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að fara yfir útfærslu á móttöku nýrra íbúa og útbúa kynningarefni til afhendingar og ljúka fyrir fyrsta febrúar.
5.
Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
Málsnúmer 2303098
Farið yfir vinnu við endurnýjun heimasíðu sveitarfélagsins.
6.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 6
Málsnúmer 2501027
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar að Valsmýri 6 740 Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarsamnings og stækkun lóðarinnar.
7.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 24
Málsnúmer 2501004F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. janúar
Bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar vegna óvissu í sjávarútvegi Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna óvissu sem nú ríkir í sjávarútvegi í kjölfar boðaðra hækkana á veiðigjöldum, einkum á uppsjávarveiðar, ásamt þeim áhrifum sem boðuð aukning á kvóta til strandveiða kemur til með að hafa á aðra kvóta. Fjarðabyggð er sveitarfélag sem byggir að stórum hluta á sjávarútvegi og óvíða kemur meiri afli á land en þar og velgengni greinarinnar er undirstaða efnahagslegrar og félagslegrar stöðu samfélagsins. Áhrifin á sjávarútveginn og sveitarfélagið: - Hækkun veiðigjalda mun auka kostnað útgerða á Austfjörðum ofan á umtalsverðar hækkanir sem urðu um áramótin og veikja þannig fjárhagslega getu þeirra. - Hækkanir á veiðigjöldum koma ofan á óstöðugleika sem þegar hefur ríkt í greininni, m.a. vegna loðnubrests, skerðinga á raforku og óvissu um markaðsaðstæður. - Fyrirséð er að slíkar hækkanir muni bitna á fjárfestingum fyrirtækja, draga úr afkomu þeirra og veikja samkeppnisstöðu þeirra á alþjóðamörkuðum. Þessar aðstæður hafa einnig afleidd áhrif á atvinnustig og tekjur samfélagsins sem þegar hafa dregist saman verulega vegna loðnubrests á liðnu ári. Hefur það haft veruleg áhrif á tekjur sveitarfélagsins Fjarðabyggðar eins og víðar um land. Áskorun til stjórnvalda: Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur stjórnvöld til að grípa til eftirfarandi aðgerða: 1. Samráð við hagsmunaaðila: Stjórnvöld þurfa að hefja samtal við útgerðir, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila sem byggja á sjávarútvegi til að eyða óvissu og kynna áform sín á málefnalegan og skýran hátt. 2. Heildrænt mat á áhrifum: Mikilvægt er að framkvæma greiningu á áhrifum boðaðra breytinga á rekstur fyrirtækja og samfélög sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi. Með þessu móti má tryggja að ákvarðanir um sjávarútveg styðji við sjálfbæra nýtingu auðlinda, efnahagslegan stöðugleika og byggðaþróun í samfélögum eins og Fjarðabyggð. Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur því ríka áherslu á nauðsyn þess að stjórnvöld bregðist við með ábyrgum hætti og hefji samtalið. Íslenskur sjávarútvegur er enn ein af grunnstoðum samfélagsins hér á landi og að henni þarf að hlúa en ekki veikja.