Fara í efni

Bæjarráð

905. fundur
31. júlí 2025 kl. 08:30 - 09:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Stefna vegna ágangsfjár
Málsnúmer 2507086
Framlögð stefna Málflutningsstofu Snæfellsness fyrir hönd Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur um meinta skaðabótaábyrgð vegna ágangs búfjár.
Bæjarráð samþykkir að fela lögmanni að annast málið fyrir hönd sveitarfélagsins.
2.
Skólaakstur Eskifjarðarskóli sund 2025
Málsnúmer 2507041
Lagt fram tilboð í akstur skólabarna milli Eskifjarðarskóla og Sundlaugar Eskifjarðar í sundkennslu skólaárið 2025 - 2026.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
3.
Skólaakstur Eskifjarðarskóli íþróttir 2025
Málsnúmer 2507039
Lagt fram tilboð í akstur nemenda milli Eskifjarðarskóla og Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar í íþróttakennslu skólaárið 2025 - 2026.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
4.
Akstur grunnskólanema í VA haustið 2025
Málsnúmer 2507042
Lagt fram tilboð í akstur nemenda í 9. og 10. bekk í Fjarðabyggð
í VA á haustönn 2025 vegna valgreinakennslu.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við bjóðanda og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.