Fara í efni

Bæjarráð

928. fundur
26. janúar 2026 kl. 08:30 - 11:25
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Málsnúmer 2505164
Farið yfir framkvæmdir og fjárfestingar ársins 2025.
2.
Yfirlýsing Fjarðabyggðar um málefni eldra fólks
Málsnúmer 2601125
Fulltrúar öldungaráðs mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir húsnæðismál og yfirlýsingu bæjarráðs húsnæðismál.
3.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2026
Málsnúmer 2510045
Framlögð uppfærð drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar frá fyrri fundi.
Bæjarráð vísar uppfærðri húsnæðisáætlun til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og samtakanna
Málsnúmer 2510156
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurnýjuðum samstarfssamningi Fjarðabyggðar og Samtakanna ´78.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
5.
Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2026
Málsnúmer 2601151
Framlögð auglýsing félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026.
Bæjarráð vísar erindi til frekari vinnslu samhliða endurskoðun á húsnæðismálum eldra fólks.
6.
Minnismerki um Naddoð
Málsnúmer 2512127
Framlagt erindi frá Sögufélagi Austurlands þar sem óskað er eftir styrkveitingu til gerðar minnisvarða um Naddoð landnámsmann.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera í samskiptum við bréfritara.
7.
Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
Málsnúmer 2504103
Farið yfir valkosti vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar og viljayfirlýsingar um umhverfisvæna orkugjafa. Verið er að afla frekari upplýsinga um verkefni og orkuþörf mannvirkisins.
8.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Málsnúmer 2601178
Framlögð fréttatilkynning frá Fiskieldissjóði þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að umsóknum í sjóðinn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
9.
Frumvarp til laga um lagareldi mál 252
Málsnúmer 2512171
Framlögð drög umsagnar um frumvarp til laga um lagareldi.
Bæjarráð samþykkir umsögnina.
10.
322. mál samgönguáætlun 2026 til 2040 auk fimm ára aðgerðaráætlunar
Málsnúmer 2601169
Framlögð til umsagnar samgönguáætlun 2026 til 2040 ásamt aðgerðaráætlun næstu fimm ára.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
11.
Ferðumst saman - leiðir Austurland Akureyri
Málsnúmer 2601181
Fjallað um almenningssamgöngur frá Austurlandi til Norðurlands.
Bæjarráð óskar eftir fundi með Vegagerðinni um leið 56, Egilsstaðir - Akureyri. Bæjarráð telur mikilvægt að Fjarðabyggð sé hluti af almenningssamgöngukerfi landsins.
12.
Skilalýsing Hlunnavogur 3
Málsnúmer 2601092
Framlagt innra vinnuskjal með tillögu um tímabundin afnotaskipti á húsnæði Kubbs að Hlunnavogi 3 og húsnæðis Fjarðabyggðar að Hjallanes 8 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra undirritun samkomulags þar um.
13.
Persónuverndarstefna 2026
Málsnúmer 2601140
Framlögð drög að endurskoðaðri persónuverndarstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.
Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
14.
Útvistunarstefna upplýsingatæknimála
Málsnúmer 2601141
Framlögð drög að endurskoðaðri útvistunarstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.
Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
15.
Upplýsingaöryggisstefna
Málsnúmer 2601142
Framlögð drög að endurskoðaðri upplýsingaöryggisstefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Stefnan hefur verið yfirfarin og uppfærð lítillega til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.
Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
16.
Upplýsingaöryggismál - neyðaráætlun
Málsnúmer 2601143
Framlögð drög að endurskoðaðri neyðaráætlun upplýsingatæknirekstrar fyrir Fjarðabyggð og stofnanir. Áætlunin hefur verið yfirfarin og uppfærð töluvert til samræmis við framkvæmd á rekstri í upplýsingatækni.
Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
17.
Helstu tölur lögreglunnar á Austuralandi árið 2025
Málsnúmer 2601179
Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Lögreglustjóranum á Austurlandi um fjölda mála embættisins á árinu 2025.
Viðhengi
2025.pdf
18.
Fjölskyldunefnd - 49
Málsnúmer 2601014F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
19.
Stjórn menningarstofu - 30
Málsnúmer 2601019F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 20. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
20.
Fjölmenningarráð - 5
Málsnúmer 2512012F
Fundargerð fjölmenningarráðs frá 16. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu