Bæjarráð
929. fundur
2. febrúar 2026
kl.
08:30
-
11:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Jón Björn Hákonarson
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Málefni fjölskyldusviðs
Farið yfir málefni fjölskyldusviðs.
2.
Yfirlýsing Fjarðabyggðar um málefni eldra fólks
Farið yfir stöðu húsnæðismála eldra fólks með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
3.
Styrktarsjóður EBÍ 2026
Framlagt erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki.
Bæjarráð vísar erindi til vinnslu hjá bæjarritara.
Bæjarráð vísar erindi til vinnslu hjá bæjarritara.
4.
Erindi frá rafíþróttadeild Austra 2026
Framlagt erindi rafíþróttadeildar Austra þar sem óskað er eftir aðstöðu fyrir starfsemi deildarinnar.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá starfshóp um uppbyggingu íþróttahúss á Eskifirði.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá starfshóp um uppbyggingu íþróttahúss á Eskifirði.
5.
Efnahagsleg greining
Framlögð drög að greiningu á efnhag sveitarfélagsins og tölfræði samfélagsins.
Fjármálasviði falið að vinna áfram að greiningu.
Fjármálasviði falið að vinna áfram að greiningu.
6.
Austurland Freeride Festival 2026
Framlagt erindi frá Mjóeyri ferðaþjónustu þar sem óskað er eftir styrk til Free ride festival hátiðarinnar 2026.
Bæjarráð samþykkir að aðstoða hátíðina með kynningu og auglýsingum.
Bæjarráð samþykkir að aðstoða hátíðina með kynningu og auglýsingum.
7.
Frumvarp um stofnun innviðafélags
Framlögð til kynningar í samráðsgátt drög að frumvarpi um stofnun sérstaks innviðafélag sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja.
8.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum til einföldunar regluverks með hollustuháttum ogmengunarvörnum
Framlagt í samráðsgátt frumvarp til laga umbreytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
9.
Hafnarstjórn - 333
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
10.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 50
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 28. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.