Fara í efni

Bæjarráð

931. fundur
16. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Málsnúmer 2601178
Framlögð drög að umsóknum um styrki í Fiskeldissjóð fyrir kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar, II. áfanga uppbyggingar Íslenska stríðsárasafnsins, nýs slökkvibíls og malbikun hafnarsvæðis á Leirubakka.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um styrk til Fiskeldissjóðs vegna verkefnanna.
2.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðu verðkönnunar vegna uppsteypu sökkla, platna og veggja í I. áfanga Íslenska stríðsárasafnsins. Stjórn samþykkir að tilboði lægstbjóðanda verði tekið, Launafl ehf. sem var undir kostnaðaráætlun. Stjórn leggur áherslu á að tímamörk verkþáttarins standi en þau eru í maí 2026.
Bæjarráð samþykkir tillögur stjórnar og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
3.
Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk
Málsnúmer 2601050
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um listamann og kaup á listaverkum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Upplýsingaöryggismál - upplýsingaöryggisreglur
Málsnúmer 2602116
Framlagðar uppfærðar öryggisreglur upplýsingatæknimála en þær hafa verið aðlagaðar frá fyrri reglum sem voru settar árið 2018.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)
Málsnúmer 2601063
Vísað frá fjölskyldunefnd uppfærðum drög að reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum, ásamt verkferlum. Með reglunum er m.a. skýrt ferli og ábyrgð vegna úthlutunar til skóla til að tryggja samhæfingu og fullnýtingu mannvirkja.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
6.
Gjaldskrá frístundaheimila 2026 2.útgáfa
Málsnúmer 2602063
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingu á gjaldskrá frístundaheimila í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir uppfærða gjaldskrá og taka breytingarnar gildi 1. apríl 2026.
7.
Kennitölur undirfyrirtækja og deilda sveitarfélagsins
Málsnúmer 2602111
Lögð fram tillaga um að lokað verði óvirkum kennitölum deilda eða málaflokka sveitarfélagsins. Um er að ræða kennitölur sem voru til fyrir sameiningu sveitarfélaga sem sameinuðust Fjarðabyggð og hafa ekki tilgang.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur fjármálasviði að vinna málið áfram.
8.
Íbúaapp Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2602114
Lögð fram tillaga um að þróað og innleitt verði upplýsinga- og þjónustuapp fyrir Fjarðabyggð. Markmið verkefnisins er að sameina helstu þjónustuupplýsingar sveitarfélagsins á einum aðgengilegum og notendavænum stað, þannig að íbúar og gestir geti á einfaldan hátt nálgast áreiðanlegar og uppfærðar upplýsingar í síma sínum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram.
9.
Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði
Málsnúmer 2601220
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði. Stækkunin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
10.
Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Málsnúmer 2601258
Framlagðar bókanir frá heilbrigðisnefnd vegna frumvarpa til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir ásamt eftirliti með matvælaöryggi.
Bæjarráð tekur undir ályktun Heilbrigðiseftirlits Austurlands um breytingar sem kynntar hafa verið á breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
11.
Hvatning til umsagnar um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
12.
Fagur fiskur í sjó
Málsnúmer 2602075
Framlagt til kynningar erindi Samtak sjávarútvegssveitarfélaga um sameiginlegan fund Fagur fiskur í sjó.
13.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 51
Málsnúmer 2602006F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
14.
Fjölskyldunefnd - 50
Málsnúmer 2601021F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
15.
Stjórn menningarstofu - 31
Málsnúmer 2602005F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
16.
Öldungaráð - 22
Málsnúmer 2512006F
Fundargerð öldungaráðs frá 9. desember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.
Öldungaráð - 23
Málsnúmer 2601013F
Fundargerð öldungaráðs frá 19. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.