Bæjarráð
932. fundur
23. febrúar 2026
kl.
08:30
-
11:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varamaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 3
Framlagður viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2025.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Efnahagur Fjarðabyggðar
Framlögð tillaga fjármálastjóra um fyrirkomulag skammtímafjármögnunar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að sviðsstjóra fjármála- og greininarsviðs sé veitt heimild til að kalla eftir tímabundinni yfirdráttarheimild allt að fjárhæð 200 m.kr. ef á þarf að halda.
Bæjarráð samþykkir að sviðsstjóra fjármála- og greininarsviðs sé veitt heimild til að kalla eftir tímabundinni yfirdráttarheimild allt að fjárhæð 200 m.kr. ef á þarf að halda.
3.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Reglur um menningarstyrki
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um úthlutun menningarstyrkja.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Vallavinnusamningur 2026
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs nýjum vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir tímabilið 01.01.2026 - 31.12.2028.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
6.
Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu nefndarinnar að heimila útleigu á gamla ræktarsalnum í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði til lögreglunnar til eins árs samkvæmt framlögðum leigusamningi.
Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa um undirbúning þróunarverkefnis við Eyri, 740 Norðfirði.
Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdanefndar undirbúningi og framkvæmd verkefnisins.
Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdanefndar undirbúningi og framkvæmd verkefnisins.
8.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar þar sem tillaga er gerð að kjörstöðum og opnunartímum þeirra vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
Lagt er til að kjörstaðir og talningastaður í Fjarðabyggð verði:
Sólbrekka í Mjóafirði
Nesskóli í Neskaupstað
Eskifjarðarkirkja á Eskifirði
Safnaðarheimilið á Reyðarfirði
Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði
Grunnskólinn á Stöðvarfirði
Grunnskólinn á Breiðdalsvík
Talningarstaður í Eskifjarðarkirkju
Kjörstaðir verði opnir frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði til kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna sveitarstjórnakosninga 16. maí nk. Vísað til bæjarstjórnar.

9.
Öruggara Austurland - samstarf og samvinna.
Farið yfir málefni Lögreglurstjórans á Austurlandi ásamt því að kynnt er stefna embættisins sem felst í áhersla er lögð á öryggi og öryggistilfinningu íbúa með markvissri, sýnilegri og forvarnamiðaðri löggæslu sem skipulögð er út frá gögnum og stöðu mála.
10.
Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana
Framlögð til kynningar drög að aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu fyrir 2026 til 2030.
11.
Erindi Krabbemeinsfélags Austfjarða um styrk til afnota af Skrúð
Framlagður tölvupóstur Krabbameinsfélags Austfjarða þar sem óskað er eftir styrk til afnota af Skrúð vegna mottumarsviðburðar 16. til 19. mars.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnotum af félagsheimilinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnotum af félagsheimilinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
12.
Fab Lab Ársskýrsla 2025
Ársskýrsla Fab Lab Austurlands lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Fundargerðir 88. og 89. fundar lagðar fram til kynningar
14.
Fjölskyldunefnd - 51
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar.
15.
Hafnarstjórn - 334
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar.
16.
Stjórn menningarstofu - 32
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofur frá 16. febrúar.