Fara í efni

Bæjarráð

935. fundur
16. mars 2026 kl. 08:30 - 11:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025
Málsnúmer 2603147
Helstu tölur og niðurstöður í ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana í frumdrögum lagður fram til kynningar.
2.
Kaupsamningur og afsal um Bakkabakka 15
Málsnúmer 2603148
Kynntar forsendur fyrir sölu Bakkabakka 15 til Leigufélagsins Bríetar ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að frágangi kaupsamnings á gefnum forsendum sem lagður verður fyrir bæjarráð til staðfestingar.
3.
Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
Málsnúmer 2504103
Framlögð til kynningar drög samninga um kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar.
Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
4.
Umsókn um lóð Strandgata 28, 740 Norðfirði
Málsnúmer 2602154
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Strandgötu 28, 740 Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
5.
740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
Málsnúmer 2107078
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðarinnar Blómsturvellir 33 á Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
6.
Fundur bæjarráðs með Vegagerðinni
Málsnúmer 2401188
Farið yfir málefni framkvæmda og viðhalds Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð.
7.
Aðalfundur SSA og ársfundur Austurbrúar 2026
Málsnúmer 2603145
Framlagt til kynningar kjörbréf fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður 20. mars nk.
Bæjarráð felur bæjarritara að fara með umboð á fundi Austurbrúar.
8.
Til umsagnar 499. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 2603079
Framlagt frá nefndasviði Alþingis til umsagnar 499. mál frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Bæjarrá felur bæjarstjóra að skila umsögn vegna frumvarpsins.
9.
Beiðni um endurgjaldslaus afnot árshátíð
Málsnúmer 2603172
Framlögð beiðni Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af Egilsbúð vegna árshátíðar nemenda skólans.
Bæjarráð samþykkir að styrkja nemendafélag skólans sem nemur afnotum þess af Egilsbúð samanber beiðni þar af lútandi. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að styrkja Verkmenntaskólann um afnota af Fjarðabyggðahöllinni vegna íþróttadags skólans. Mætt af liðnum óráðstafað 21690.
10.
Til umsagnar 505. mál frá nefnda- og greiningarsviði
Málsnúmer 2603078
Framlagt frá nefndasviði Alþingis til umsagnar 505. mál, frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
Bæjarráð tekur undir megin sjónarmið frumvarpsins og felur bæjarstjóra að veita umsögn.
11.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Málsnúmer 2009034
Farið yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.
12.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Pálina Margeirsdóttir hefur óskað eftir lausn frá nefndarstörfum vegna búferlaflutninga. Tinna Hrönn Smáradóttir tekur sæti varamanns í öldungaráði í stað Pálínu og Birgir Jónsson tekur sæti Pálinu sem varamanns í hafnarstjórn.
13.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
14.
Fjölskyldunefnd - 53
Málsnúmer 2603006F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
15.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 54
Málsnúmer 2603008F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
16.
Stjórn menningarstofu - 33
Málsnúmer 2603007F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.
Ungmennaráð - 22
Málsnúmer 2602007F
Fundargerð ungmennaráðs frá 11. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
18.
Öldungaráð - 24
Málsnúmer 2602008F
Fundargerð öldungaráðs frá 16. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.