Fara í efni

Bæjarráð

936. fundur
23. mars 2026 kl. 08:30 - 11:20
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2025
Málsnúmer 2603147
Drög ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana lögð fram til kynningar.
Bæjaráð vísar ársreikningi 2025 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu bæjarstjórnar og áritunar bæjarráðs sem fer fram á fundi þess fimmtudaginn fyrir bæjarstjórnarfund kl. 12:00.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Framlögð drög að tímasetningum vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna að undirbúningi að fjárhagsáætlun sem verður kynnt bæjarráði.
3.
Málefni Heilbrigðisstofnunar
Málsnúmer 2603209
Fjallað um sameiginleg málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
4.
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði
Málsnúmer 2603146
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Strandgötu 33 á Eskfirði.
Bæjarráð tekur vel í erindi en vísar því til frekari vinnslu hjá skipulags- og framkvæmdasviði áður en endanleg úthlutun fer fram og erindið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
5.
Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
Málsnúmer 2504103
Framlögð til kynningar drög samninga um kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari útfærslu á ákveðnum liðum samninganna og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
6.
Samningur við Brettafélag Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2602092
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Brettafélag Fjarðabyggðar vegna leigu á búnaði í Oddsskarði vegna brettaiðkunar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Samráðsfundur um almenningssamgöngur á austurlandi
Málsnúmer 2603134
Framlögð gögn vegna samráðsfundar Vegagerðar með sveitarfélögunum um landsbyggðarvagna þ.e. almenningssamgöngur innan sveitarfélaga og milli þeirra.
8.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundargerð 995. fundar lögð fram til kynningar
9.
Fjölskyldunefnd - 54
Málsnúmer 2603011F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
10.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 55
Málsnúmer 2603016F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
11.
Hafnarstjórn - 335
Málsnúmer 2603015F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
12.
Hafnarstjórn - 336
Málsnúmer 2603018F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 20. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Í framhaldi af aðalfundi SSA sem haldinn var á Fáskrúðsfirði þann 20. mars sl. leggur bæjarráð Fjarðabyggðar ríka áherslu á að stjórn SSA, greini fjárhag sambandsins og hagræði í rekstri með það fyrir augum að ekki komi til hækkunar árgjalda til sveitarfélaganna. Mikilvægt er að gæta aðhalds í rekstri SSA sem og annarra samstarfsvettvanga sveitarfélaganna á Austurlandi, líkt og gert er í rekstri sveitarfélaganna sjálfra. Því er nauðsynlegt að stjórn SSA fari í þessa vinnu strax og leggi fram tillögur í þessum efnum á komandi haustþingi sambandsins. Bæjarráð Fjarðabyggðar telur þá 6,6% hækkun árgjalda sem samþykkt var í óþökk meirihluta fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfundinum ekki boðlega fyrir sveitarfélögin á Austurlandi og hvetur stjórn SSA til að endurskoða þá ákvörðun í tengslum við vinnu þessa.