Bæjarráð
940. fundur
13. apríl 2026
kl.
08:30
-
11:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Jón Björn Hákonarson
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Farið yfir framkvæmdir tengdum ofanflóðaframkvæmdum. Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmdanna á fundinum.
2.
Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum í minnisblaði um kostnað og lausnir vegna erindis fjölskyldusviðs um aðstöðu og áhöld í íþróttahúsi Reyðarfjarðar.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
3.
Gamli barnaskólinn á Eskifirði
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til bæjarráðs minnisblaði vegna frágangs á jarðvegshleðslu við gamla barnaskólann á Eskifirði. Kostnaður nemur um 5,5 m.kr.
Bæjarráð samþykkir að fari verði í framkvæmdina og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Bæjarráð samþykkir að fari verði í framkvæmdina og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
4.
Byggingar á þekktum flóðasvæðum
Framlagt til kynningar minnisblað frá fundi Náttúruhamfaratrygginga Íslands með Fjarðabyggð um túlkun á ákvæðum trygginga vegna mannvirkja á þekktum flóðasvæðum.
5.
Greining á vef Fjarðabyggðar
Lögð fram greining frá fyrirtækinu Fúnksjón sem það vann á nýjum vef Fjarðabyggðar. Í greiningunni er farið yfir uppbyggingu vefsins, notendaupplifun, leit, aðgengi, hraða, efnisframsetningu og umferð á vefnum.
Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vinna að úrbótum sem lagðar eru til í greinargerðinni.
Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vinna að úrbótum sem lagðar eru til í greinargerðinni.
6.
Tæknidagur Fjölskyldunnar 2026
Framlagt til kynningar minnisblað um þátttöku Fjarðabyggðar í Tæknidegi fjölskyldunnar árið 2026.
Bæjarráð samþykkir að stofnanir sveitarfélagsins taki þátt í tæknideginum eins og verið hefur undanfarin ár.
Bæjarráð samþykkir að stofnanir sveitarfélagsins taki þátt í tæknideginum eins og verið hefur undanfarin ár.
7.
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir
Framlögð niðurstaða í úthlutun styrkja Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands en Fjarðabyggð fékk styrk að fjárhæð 900.000 kr. vegna sýningarhönnunar Íslenska stríðsárasafnsins. Vísað til stjórnar menningarstofu.
8.
Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
Framlögð gögn vegna slita á Sjóminjasafni Austurlands sem bæjarráð hafði samþykkt 17. nóvember sl. og bæjarstjórn staðfesti þann 20. nóvember sl. Búið er að ganga frá öllum formsatriðum vegna yfirfærslu rekstrarins og eigna til sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir yfirtöku eigna og reksturs Sjóminjasafns Austurlands og þær skuldbindingar sem hvíla á félaginu og felur bæjarstjóra undirritun nauðsynlegra gagna vegna yfirfærslunnar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

9.
Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Búðareyri 12 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
10.
Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Áreyja
Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins nr. IRN24090024 vegna stjórnsýslukæru landeiganda Áreyja í Reyðarfirði.
11.
Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Óseyrar
Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins nr. IRN24080065 vegna stjórnsýslukæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.
12.
Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Íslenska stríðsárasafnið. Framkvæmdin fékk liðlega 45 m.kr. styrk.
13.
Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til framkvæmda við Fjarðabyggðarhöllina. Framkvæmdin fékk liðlega 46 m.kr. styrk.
14.
Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll
Framlagt bréf frá Fiskeldissjóði um styrkveitingu til kaupa á nýjum slökkvibíl. Styrkur vegna kaupanna nemur liðlega 15 m.kr. styrk.
15.
Aðalfundarboð Leigufélagsins Bríetar
Framlagt boð á aðalfund Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn verður 21. apríl 2026 kl. 12 hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun að Borgartúni 21.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
16.
Ársfundur 2026
Framlagt fundarboð ársfundur StarfA sem haldinn verður 29. apríl í húsnæði félagsins að Miðvangi 1-3 á Egilsstöðum.
Bæjarráð felur Laufeyju Þórðardóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.
Bæjarráð felur Laufeyju Þórðardóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.
17.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar.
18.
Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Sameiginlegur fundur hafnarstjórnar og bæjarráðs.
Farið yfir niðurstöður útboðs dýpkunarframkvæmda við bryggju við athafnasvæði Eskju ehf. á Leirubakka á Eskifirði.
Opnun tilboða fór fram kl. 10:00.
Lögð fram opnunarskýrsla útboðsins.
Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur Cowi, umsjónaraðila útboðsins, að yfirfara tilboðin og leggja niðurstöður fyrir hafnarstjóra.

19.
Gjaldskrár 2026
Lögð fram tillaga um breytingu á þjónustugjaldskrám fyrir árið 2026.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að þjónustugjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um 3% frá og með næstu mánaðarmótum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu. Breytingum vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu og hafa þannig áhrif á kostnaðarþróun í samfélaginu. Með því að lækka gjaldskrárnar vill Fjarðabyggð senda skýr skilaboð um að sveitarfélagið ætli að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa.
Bæjarráð telur að svigrúm sé til þessarar lækkunar á grundvelli bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar.
Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnvöld til að grípa til sambærilegra aðgerða á sínum vettvangi með því að endurskoða gjaldskrár ríkisins og draga úr álögum þar sem svigrúm er til staðar.