Fara í efni

Bæjarráð

941. fundur
20. apríl 2026 kl. 08:30 - 12:10
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs.
Málsnúmer 2604106
Fjallað um málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga og hugsanlegar breytingar á stofnsamningi safnsins sem lagðar yrðu fyrir næsta aðalfund þess er varðar rekstur þess og húsnæðiskostnað.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir sem lagðar eru fram og vísar þeim til frekari úrvinnslu stjórnar safnsins sem síðan yrðu lagðar fyrir aðalfund safnsins.
2.
Beiðni um styrk til kaups á björgunardróna
Málsnúmer 2604034
Framlögð beiðni frá Björgunarsveitinni Brimrúnu um framlag fyrir nýjum sérhæfðum björgunardróna sem getur flutt lífsnauðsynlegan búnað beint á slysstað, til dæmis fyrstu hjálp, hitateppi eða samskiptabúnað.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
3.
Ferðakostnaðar vegna íþróttaiðkunar
Málsnúmer 2604057
Fjallað um áskorun frá KSÍ til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026. Í henni var lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.

Bókun í bæjarráði Fjarðabyggðar - ferðakostnaður vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum af síhækkandi ferðakostnaði sem fellur á íþróttafélög og foreldra barna sem stunda íþróttir og tómstundir á landsbyggðinni. Ljóst er að þessi kostnaður er orðinn verulegur og getur í sumum tilvikum haft áhrif á þátttöku barna í skipulögðu starfi.
Íþróttafélög í Fjarðabyggð þurfa oft að ferðast langar vegalengdir til æfinga, keppna og viðburða, einkum þegar sækja þarf mót og keppnir á höfuðborgarsvæðið. Þessi staða skapar ójafnræði milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis og leggur aukna fjárhagslega byrði á fjölskyldur út á landi.
Bæjarráð telur mikilvægt að bregðast við þessari þróun og felur bæjarstjóra að vinna tillögur að úrbótum í samráði við íþróttahreyfinguna og önnur sveitarfélög. Þar verði meðal annars skoðaðir möguleikar á:
-
auknum stuðningi við ferðakostnað vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna,
-
samstarfi við atvinnulíf og aðra hagaðila um uppbyggingu ferðasjóðs,
-
sameiginlegum aðgerðum sveitarfélaga til að þrýsta á stjórnvöld um aukinn stuðning við landsbyggðina í þessum málaflokki.
Bæjarráð leggur áherslu á að tryggja jafnan aðgang barna að íþrótta- og tómstundastarfi óháð búsetu og að fjárhagsleg staða foreldra verði ekki hindrun fyrir þátttöku.
4.
Forkaupsréttur að Gullveri NS-12
Málsnúmer 2604058
Framlagt erindi frá Síldarvinnslunni hf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að skipinu Gullveri NS-12.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Gullveri NS-12.
5.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Vísað frá stjórn menningarstofu til umfjöllunar bæjarráðs framkvæmdum og fjármögnun þeirra en leggur áherslu á að mikilvægt sé að hægt sé að ljúka 1. og 2. áfangi við endurgerð safnsins fylgi í beinu framhaldi þannig að safnið verði komið í rekstur með þeim áföngum sumarið 2027.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að vinna málið áfram ásamt því að sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs er falið að fyrsta áfanga verði lokið á árinu og unnið sé að öðrum áfanga.
6.
Samskiptastefna 2026
Málsnúmer 2604082
Framlögð drög að endurskoðaðri samskiptastefnu Fjarðabyggðar en upphafleg stefna gerði ráð fyrir endurskoðun hennar fyrir árslok 2024 það er þegar reynsla væri komin á hana.
Bæjarráð samþykkir breytingar á stefnunni fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Ósk um kaup á Gilsárstekk í Breiðdal
Málsnúmer 2604092
Framlagður tölvupóstur Guðnýjar Harðardóttur vegna kaupa hennar á jörðinni Gilsárstekkur í Breiðdal af Ríkissjóði þar sem óskað er eftir meðmælum ­sveitarstjórnar.
Bæjarráð veitir meðmæli sín með kaupum Guðnýjar Harðardóttur á jörðinni og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
8.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Málsnúmer 2205172
Fjallað um skipan kjörstjórna í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. með hliðsjón af vanhæfi kjörstjórnarmanna.
Formaður yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar fór yfir skipun kjörnefnda sveitarfélagsins fyrir komandi kosningar 16. maí nk.
9.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Málsnúmer 2602135
Framlagðar til kynningar upplýsingar frá Landskjörstjórn vegna meðferðar kjörskrár fyrir sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí n.k.
10.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Málsnúmer 2604064
Framlagt erindi frá Umboðsmanni barna um að sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga standi fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.
Bæjarráð óskar eftir að ungmennaráð fjalli um málið og skili bæjarráð tillögu sinni. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að fylgja máli eftir.
11.
Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026
Málsnúmer 2509098
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá stuðningsþjónustu sem tekur gildi 1. maí 2026.
12.
Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2026
Málsnúmer 2509033
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik sem tekur gildi 1. maí 2026.
13.
Gjaldskrá leikskóla 2026
Málsnúmer 2509041
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá leikskólagjalda sem tekur gildi 1. maí 2026.
14.
Gjaldskrá grunnskóla 2026
Málsnúmer 2509036
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá grunnskólana sem tekur gildi 1. maí 2026.
15.
Gjaldskrá tónlistarskóla 2026
Málsnúmer 2509100
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá tónlistarskóla sem tekur gildi 1. maí 2026.
16.
Gjaldskrá bókasafna 2026
Málsnúmer 2508182
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá bókasafna sem tekur gildi 1. maí 2026.
17.
Gjaldskrá safna 2026
Málsnúmer 2508018
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá safna sem tekur gildi 1. maí 2026.
18.
Gjaldskrá félagsheimila 2026
Málsnúmer 2508187
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá félagsheimila sem tekur gildi 1. maí 2026.
19.
Gjaldskrá frístundaheimila 2026
Málsnúmer 2509031
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá frístundaheimila sem tekur gildi 1. maí 2026.
20.
Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2026
Málsnúmer 2508186
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá félagsmiðstöðva sem tekur gildi 1. maí 2026.
21.
Gjaldskrá sundlauga 2026
Málsnúmer 2509099
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá sundlauga sem tekur gildi 1. maí 2026.
22.
Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2026
Málsnúmer 2509042
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá líkamsræktarstöðva sem tekur gildi 1. maí 2026.
23.
Gjaldskrá íþróttahúsa 2026
Málsnúmer 2509040
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá íþróttahúsa sem tekur gildi 1. maí 2026.
24.
Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2026
Málsnúmer 2509039
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá íþróttahúsa, stórviðburðir sem tekur gildi 1. maí 2026.
25.
Gjaldskrá skíðasvæðis 2026
Málsnúmer 2509093
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá skíðasvæðis sem tekur gildi 1. maí 2026.
26.
Gjaldskrá hunda- og kattahald 2026
Málsnúmer 2509038
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá hunda- og kattahalds sem tekur gildi 1. maí 2026.
27.
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026
Málsnúmer 2509095
Tillaga að uppfærðri gjaldskrá sem gildir frá 1. maí 2026. Gjaldskrá lækkar um 3%.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá skipulags- og byggingarmála sem tekur gildi 1. maí 2026.
28.
Fundarboð frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þriðjudaginn 21. apríl
Málsnúmer 2604095
Framlag fundarboð umhverfis- og samgöngunefndar þann 21. apríl þar sem fjallað verður um 505. mál, sveitarstjórnarlög.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka þátt í fundinum.
29.
Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélög
Málsnúmer 2604076
Framlagt fundarboð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Tillaga að breytingum á samþykktum Samtaka orkusveitafélaga verður framlögð.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð á fundinum.
30.
Ársfundur 2026
Málsnúmer 2604065
Boðað er til ársfundar Brákar íbúðafélags hses. þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 12:00.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð á fundinum.
31.
Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Málsnúmer 2510179
Sameiginlegur fundur hafnarstjórnar og bæjarráðs.
Farið yfir niðurstöðu yfirferðar umsjónarmanns útboðs á dýpkun hafnarsvæðis við Leirubakka á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir skýringarfundi með bjóðendum þar sem tilboðin eru yfir kostnaðaráætlun og felur hafnarstjóra ásamt verkefnastjóra hafna, sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og umsjónarmanni útboðs að vinna málið áfram og leggja fyrir sameiginlegan fund bæjarráðs og hafnarstjórnar þann 20. apríl.
32.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Málsnúmer 2604093
Framlögð greinargerð um stöðu framkvæmda það sem af er ári og framkvæmdir framundan.
33.
Framkvæmdir við miðbæ Neskaupstaðar
Málsnúmer 2604107
Fjallað um framkvæmdir í miðbæ Neskaupstaðar samkvæmt deiliskipulagi svæðisins, torg í Stekkjargötu en rekstraráætlun fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir fjármögnun til framkvæmdanna.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir verði hafnar og vísar erindi til umfjöllunar skipulags- og framkvæmdanefndar og sviðsins til undirbúnings og framkvæmdar.
34.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Framsóknarflokkurinn skipar Jón Björn Hákonarson sem varamann í skipulags- og framkvæmdanefnd í stað Karenar Malmquist Ragnarsdóttur sem flutt er búferlaflutningum.
35.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 57
Málsnúmer 2604011F
Framlögð fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
36.
Stjórn menningarstofu - 35
Málsnúmer 2604010F
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
37.
Hafnarstjórn - 337
Málsnúmer 2604007F
Framlögð fundargerð hafnarstjórnar frá 13. apríl til umfjöllunar og afgreiðslu.
38.
Öldungaráð - 25
Málsnúmer 2603014F
Framlögð fundargerð öldungaráðs frá 16. mars til umfjöllunar og afgreiðslu.