Fara í efni

Bæjarráð

943. fundur
27. apríl 2026 kl. 08:30 - 09:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Auka hluthafafundur Leigufélagsins Bríetar
Málsnúmer 2604142
Framlagt boð á auka hluthafafund Leigufélagsins Bríetar þann 28.april.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
2.
Heilsugæsla og læknamál á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2604128
Framlagt erindi Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar vegna heilsugæslu á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindi Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar varðandi stöðu heilsugæslu- og læknisþjónustu á svæðinu. Ljóst er að sú þróun sem þar er lýst, þar sem aðgengi að þjónustu hefur versnað, veldur íbúum verulegum áhyggjum, ekki síst eldra fólki og þeim sem búa við langvarandi heilsuvanda.
Bæjarráð hefur áður fjallað um málið og falið bæjarstjóra að eiga samtal við Heilbrigðisstofnun Austurlands. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð og að brugðist verði við með skýrum hætti.
Bæjarráð óskar eftir því að bæjarstjóri fylgi málinu áfram eftir við HSA og upplýsi bæjarráð um framvindu þess. Þá er jafnframt lögð áhersla á mikilvægi þess að íbúar fái skýrar og tímanlegar upplýsingar um breytingar á þjónustu.
3.
Þjónusta ÁTVR
Málsnúmer 2604168
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir áhyggjum af fyrirhugaðri lokun verslunar ÁTVR á Fáskrúðsfirði sem áformað er að loki 1. júní nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn ÁTVR og kalla eftir skýrum skýringum og rökstuðningi fyrir lokuninni.
4.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 2
Málsnúmer 2506010F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 10. júní 2025 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
5.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 3
Málsnúmer 2506021F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 23. júní 2025 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
6.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 4
Málsnúmer 2510005F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 10. október 2025 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
7.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 5
Málsnúmer 2510030F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 5. nóvember 2025 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
8.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 6
Málsnúmer 2601012F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 14. janúar 2026 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
9.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 7
Málsnúmer 2601018F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 21. janúar 2026 framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu.