Fara í efni

Bæjarráð

944. fundur
4. maí 2026 kl. 08:30 - 10:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
Málsnúmer 2604239
Framlagður viðauki I við fjárhagsáætlun 2026.
Bæjarráð samþykkir að vísa viðaukanum til næsta fundar bæjarráðs.
2.
Forkaupsréttur að Ljósafelli SU-90
Málsnúmer 2604177
Framlagt erindi frá Loðnuvinnslunni ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að skipinu Ljósafelli SU-90.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að skipinu Ljósafelli SU-90.
3.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Málsnúmer 2510022
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðu verðkönnunar vegna endurnýjunar á þaki Grunnskóla Breiðdalsvík.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við bjóðanda og farið verði í framkvæmdina. Fjármögnun framkvæmdar vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
4.
Beiðni um endurskoðun álagningar sorphirðugjalda
Málsnúmer 2604227
Framlagt erindi vegna endurskoðunar á álagningu sorphirðugjalda.
Erindi vísað til vinnslu hjá fjármálastjóra.
5.
Lækjarkanntavarnir vegna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar
Málsnúmer 2511191
Framlagt bréf frá Sigurði Jenssyni vegna bakkavarna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs í samstarfi við Ofanflóðasjóð.
6.
Reglur fyrir íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar 2026
Málsnúmer 2604157
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum reglum fyrir íþrótta- og tómstundastyrki Fjarðabyggðar 2026.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
7.
Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 2604197
Framlagt til umsagnar frumvarp til loftlagslaga.
Lagt fram til kynningar og til bæjarstjóra til skoðunar.
8.
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
Málsnúmer 2510021
Framlögð til kynningar úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en styrkur fékkst til framkvæmda við Bleiksárfoss.
Vísað til kynningar og umræðu í skipulags- og framkvæmdanefnd.
9.
Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 21. maí 2025
Málsnúmer 2604203
Framlagt boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga sem haldinn verður 21. maí nk.
10.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundagerð fundar 997 lögð fram til kynningar
11.
Hafnarstjórn - 339
Málsnúmer 2604019F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
12.
Fjölskyldunefnd - 58
Málsnúmer 2604021F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
13.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 58
Málsnúmer 2604025F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.