Fara í efni

Bæjarráð

945. fundur
11. maí 2026 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
Málsnúmer 2604239
Framlagður uppfærður viðauki I við fjárhagsáætlun 2026.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar viðaukanum til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Rafræn innkaupakort
Málsnúmer 2605053
Framlögð til kynningar breyting á fyrirkomulagi innkaupa hjá Fjarðabyggð þar sem innleidd verður ný gerð innkaupakorta.
3.
Afnám læknaþjónustu Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2605025
Framlögð til kynningar bréf vegna afnám læknaþjónustu á Fáskrúðsfirði og þjónustustig samfélagsins þar. Erindi hefur verið svarað en sveitarfélagið mun leita með Heilbrigðisstofnun Austurlands að mæta þörfum.
4.
Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfjarðar
Málsnúmer 2605034
Framlagt erindi íbúasamtakanna um ýmiss málefni Fáskrúðsfjarðar. Fjallað um einstök málefni erindisins.
Bæjarráð þakkar ábendingar og vísar þeim til frekari vinnslu hjá sviðum sveitarfélagsins.
5.
Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
Málsnúmer 2504103
Framlagðir til upplýsinga undirritaðir samningar við Alor og Tandraorku vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar.
Bæjarráð staðfestir samninga.
6.
Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofa
Málsnúmer 2605073
Framlagður til kynningar upplýsingapóstur frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu um skipan stýrihóps sem vinnur að framtíðarskipulagi náttúrustofa.
7.
Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026
Málsnúmer 2602238
Framlagðar fundargerðir stjórnar Austurbrúar og stjórnar Sambands sveitarfélga á Austurlandi frá 24. apríl.
8.
Ósk um viðburðarleyfi fyrir Hjólamót
Málsnúmer 2605097
Framlagt erindi frá Fönn hjólafélagi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að halda hjólaviðburð 13. júní til tímabundinnar lokunar gatna ef þörf krefur auk aðstoðar við lokanir eða stýringu umferðar og samstarf varðandi öryggismál.
Bæjarráð samþykkir að veita heimild til lokunar á götum í samstarfi við félagið og felur skipulags- og framkvæmdasviði að vera í samskiptum og aðstoð vegna viðburðarins.
9.
Aðalfundur Breiðdalsseturs 2026
Málsnúmer 2605096
Aðalfundur Breiðdalsseturs var haldinn 9. maí sl.
Bæjarstjóri sótti fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar og situr áfram í stjórn setursins.
10.
Hafnarstjórn - 340
Málsnúmer 2605001F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
11.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 8
Málsnúmer 2604008F
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 27. apríl lögð fram til umfjöllunar og samþykktar.
12.
Fjölskyldunefnd - 59
Málsnúmer 2604029F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.