Fara í efni

Bæjarráð

946. fundur
8. júní 2026 kl. 08:30 - 12:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2026
Málsnúmer 2602253
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur málaflokka fyrir janúar-mars auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar til apríl 2026.
2.
Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. 2025
Málsnúmer 2606032
Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2025 lagður fram til staðfestingar og undirritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.
3.
Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2025
Málsnúmer 2606033
Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2025 lagður fram til staðfestingar og undirritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni
4.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Framlögð endurskoðuð tillaga að skipulagi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 ásamt dagsetningum í ferlinu.
Bæjarráð samþykkir uppfærða tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2027 og felur sviðsstjórum og nefndum að hefja vinnu við áætlunargerðina til samræmis við sett tímamörk.
5.
Viðhald tækja og búnaðar í Oddskarði
Málsnúmer 2605080
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs hækkun framlaga til viðhalds og reksturs á tækjum tækjamiðstöðvar í Oddskarði. Fyrirséð er að reksturinn fer fram úr áætlun vegna viðhalds á tækjum og búnaði skíðamiðstöðvarinnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjármögnun viðhalds tækja og búnaðar miðstöðvarinnar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
6.
Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 nr. 46 48 65 2025
Málsnúmer 2509226
Framlagðir úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 4. júní 2026, í máli nr. 46, 48 og 65/2025; UHA Umhverfisþjónusta ehf. gegn Fjarðabyggð og Kubbi ehf vegna útboðs á úrgangsþjónustu vegna áranna 2026 til 2029. Niðurstaða kærunefndarinnar er Fjarðabyggð í vil þar sem að kærunum er hafnað eða vísað frá.
7.
Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2212036
Farið yfir reglur um kjör kjörinna fulltrúa og búnaðargreiðslu til kjörinna fulltrúa. Samkvæmt venju hefur kjörnum fulltrúum verið lagt til framlag vegna búnaðar sem þeir þurfa vegna starfa sinna.
Bæjarráð samþykkir að greidd verði búnaðargreiðsla til kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn að fjárhæð 250.000 kr. og vísar fjármögnun til gerðar viðauka við fjárhagsáætlunar ársins 2026.
8.
Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 1805176
Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram til endurskoðunar á fyrsta starfsári bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar óbreyttar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
9.
Ráðning bæjarstjóra 2026 - 2030
Málsnúmer 2605170
Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs undirritun ráðningarsamnings bæjarstjóra.
Bæjarráð staðfestir ráðningarsamning bæjarstjóra með undirritun sinni.
10.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Skipan eins aðalfulltrúa og annars til vara í þriggja manna stjórn Náttúrustofu Austurlands. Þá velur bæjarráð stjórninni formann í samráði við byggðaráð Múlaþings. Náttúrustofan starfar samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
Bæjarráð samþykkir að Húnbogi Sólon Gunnþórsson verði aðalfulltrúi og Gunnar Sveinbjörn Ólafsson varafulltrúi Fjarðabyggðar. Fjarðabyggð og Múlaþing hafa komið sér saman um að sameiginlegur aðalfulltrúi sveitarfélaganna sé Líneik Anna Sævarsdóttir sem verði formaður stjórnar.
11.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Bæjarráð kýs fimm fulltrúa í upplýsingaöryggisnefnd. Upplýsingaöryggisnefnd er bæjarráði til ráðuneytis um persónuverndar- og upplýsingaöryggismál. Hún mótar stefnu í upplýsingaöryggi og persónuvernd og er ráðgefandi um þau mál.
Bæjarráð samþykkir að upplýsingaöryggisnefnd verði skipuð bæjarritara, stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar, stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu, sviðsstjóra mannauðsmála ásamt persónuverndarfulltrúa.
12.
Kosning í fulltrúaráð EBÍ
Málsnúmer 2605220
Framlagt bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands vegna kjörs í fulltrúaráð félagsins.
13.
Frumathugun varna Innri Einarsstaðaá
Málsnúmer 2606006
Lagðar eru fram til afgreiðslu verkáætlanir Cowi og Verkís vegna vinnu frumathugunar v. krapaflóðavarna í Einarsstaðaám á Stöðvarfirði.
Bæjarráð samþykkir tillögu Ofanflóðasjóðs að tilboði Verkís upp á 24 MISK án VSK sé tekið á grundvelli lægri kostnaðar.
14.
Skjálausnir í íþróttamiðstöðvar
Málsnúmer 2605230
Lagt fram minnisblað vegna tillögu Skjáauglýsinga um samstarf um uppsetningu auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að unnið verið að málinu áfram og samningur lagður fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
15.
Bráðnauðsynlegar framkvæmdir við Lystigarðinn í Neskaupstað
Málsnúmer 2606017
Framlagt bréf Lystigarðsnefndar og stjórnar Kvenfélagsins Nönnu þar sem farið er fram á að þær áætlanir sem liggja fyrir um garðinn verði framkvæmdar og fjármagn tryggt.
Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs til úrvinnslu í samstarfi með forstöðumanni þjónustumiðstöðvar og garðyrkjustjóra.
16.
Fyrirspurn, kaup á fasteign Egilsbraut 9
Málsnúmer 2606048
Framlögð fyrirspurn eiganda fasteigninar að Egilsbraut 9 (Adamsborg) í Neskaupstað um hvort sveitarfélagið hafi áhuga á kaupum á eigninni.
Bæjarráð hefur ekki áhuga fyrir kaupum á eigninni.
17.
Forkaupsréttur að Austfirðing HU-204
Málsnúmer 2606053
Framlagt erindi Gullrúnar ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu til nýtingar forkaupsréttar vegna sölu á bátnum Austfirðing HU-204. Báturinn selst án allra aflaheimilda og veiðiréttinda.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Austfirðing HU-204.
18.
Viljayfirlýsing
Málsnúmer 2511118
Fjallað um málefni Breiðabliks í Neskaupstað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
19.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Málsnúmer 2009034
Farið yfir framkvæmdir við Ofanflóðavarnir í Nes- og Bakkagiljum.
Bæjarráð óskar eftir fundi með fulltrúa Ofanflóðasjóðs og Veðurstofunnar.
20.
Umsögn vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.
Málsnúmer 2605092
Framlögð umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að veita umsögn vegna málsins.
21.
Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2025
Málsnúmer 2605238
Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.
22.
Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 2026
Málsnúmer 2605110
Fundargerð Náttúrustofu Austurlands frá 10. apríl lögð fram til kynningar.
23.
Aðalfundarboð 2026 - Olíusamlagið
Málsnúmer 2606007
Aðalfundur Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað var haldinn 3. júní sl. kl. 16:00. Fjármálastjóri sótti fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.
24.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundagerð 998. og 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.
25.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2602129
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 91 og 92.
26.
Ársfundur 2026
Málsnúmer 2604065
Framlögð til kynningar fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags frá 28. apríl 2026.
Bókun bæjarráðs. Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum sínum með þær áherslur sem birtast í drögum að samgönguáætlun og öðrum áformum ríkisins um innviðauppbyggingu er snúa að Fjarðabyggð. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðaveg. Um er að ræða eitt mikilvægasta samgönguverkefni þjóðvegakerfisins og hefur beðið of lengi eftir úrlausn þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um mikilvægi hans fyrir umferðaröryggi, búsetuskilyrði, atvinnulíf og samkeppnishæfni sveitarfélagsins. Þá lýsir bæjarráð yfir ánægju sinni með að rannsóknir við Fjarðagöng séu að hefjast. Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með að Austurland skuli ekki vera meðal þeirra landshluta þar sem uppbygging verknámshúss er fyrirhuguð á næstu misserum. Öflugt verknám er lykilforsenda áframhaldandi uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar á Austurlandi og því mikilvægt að nemendur og fyrirtæki á svæðinu búi við sambærileg tækifæri og annars staðar á landinu. Þá vekur það einnig áhyggjur að fjölgun hjúkrunarrýma á Austurlandi skuli ekki vera fyrirhuguð fyrr en árið 2030 þrátt fyrir augljósa og vaxandi þörf. Íbúar Austfjarða eiga rétt á sömu þjónustu og öryggi og aðrir landsmenn og mikilvægt að brugðist sé við þeirri þróun sem fyrirsjáanleg er í öldrun þjóðarinnar. Bæjarráð telur að Fjarðabyggð hafi um of setið eftir þegar kemur að uppbyggingu innviða ríkisins. Á sama tíma standa sveitarfélagið og atvinnulífið í umfangsmikilli uppbyggingu hafna og annarra innviða fyrir milljarða króna til að styðja við áframhaldandi verðmætasköpun fyrir land og þjóð. Mörg verkefni á vegum ríkisins hafa verið til umræðu og á áætlunum um árabil án þess að fjármögnun eða framkvæmdir hafi fylgt. Nú þarf að tryggja að þau komist til framkvæmda. Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að forgangsraða uppbyggingu innviða í Fjarðabyggð í samræmi við mikilvægi gagnvart inn- og útflutningi og grunnatvinnuvegum. Með markvissum fjárfestingum í samgöngum, verknámi og heilbrigðisþjónustu getur ríkið stutt við áframhaldandi verðmætasköpun, aukið samkeppnishæfni landsins og skapað forsendur fyrir aukinni hagsæld til framtíðar.