Fara í efni

Bæjarráð

949. fundur
29. júní 2026 kl. 08:30 - 10:50
í fjarfundi
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Franskir Dagar ''26
Málsnúmer 2507107
Farið yfir undirbúning vegna vinarbæjarheimsóknar fulltrúa Gravelines til Fjarðabyggðar á Franska daga. Fulltrúar frá vinarbæ Fjarðabyggðar, Gravelines í Frakklandi, munu heimsækja Fjarðabyggð dagana 16.til 19. júlí 2026.
Bæjarráð samþykkir að oddvitar flokkanna ásamt bæjarstjóra skipuleggi viðverum og þátttöku fulltrúa Fjarðabyggðar í heimsókninni.
2.
Boð á íslendingadaga í Gravelines
Málsnúmer 2606178
Framlagt bréf frá sveitarfélaginu Gravelines þar sem fulltrúum Fjarðabyggðar er boðið til Íslendingadaga sem fram fara 25. til 28. september í Gravelines.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar að skipuleggja ferðina.
3.
Uppfærð bæjarskilti
Málsnúmer 2605176
Kynnt vinna við uppfærslu bæjarskilta í Fjarðabyggð sem hefur verið unnið í samstarfi við Sigurð Val, hönnuð skiltanna og Skiltaval ehf vegna prentunar og uppsetningar. Upprunaleg hönnun skiltanna er frá því fyrir tæpum tíu árum.
4.
Sterkur Stöðvarfjörður 2026
Málsnúmer 2605171
Farið yfir stöðu verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður, sem er hluti af verkefninu Brothættar byggðir en því lýkur í lok ársins. Gert ráð fyrir að Fjarðabyggð leiði verkefnið og haldi utan um markmið þess í um eitt ár eftir að fjármögnun Byggðastofnunar lýkur.
Bæjarráð samþykkir að bæjarráð fylgi verkefninu eftir með fulltrúum í stýrihópnum reglubundið næsta ár.
5.
Verðskrá móttöku- og söfnunarstöðva
Málsnúmer 2602112
Fjallað um verðskrá Kubbs vegna úrgangsflokka á móttöku- og söfnunarstöðvum sem lögð er til umsagnar fyrir bæjarráð.
Gjaldskráin mun taka gildi 1. ágúst 2026 og falla þá úr gildi eldri klippikort útgefin af Fjarðabyggð en Kubbur ehf. mun taka við sölu klippikorta og innheimtu á móttökustöðum til samræmis við útboð úrgangsþjónustu. Eigendur klippikorta útgefnum af Fjarðabyggð geta fengið endurgreiðslu ónýttra heimilda á bæjarskrifstofu.
6.
Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Málsnúmer 2603168
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs fjármögnun á flutningi Vinasels - frístundar Nesskóla skólaárið 2026 til 2027.
Bæjarráð samþykkir kostnað vegna ráðstafana við flutning Vinasels og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
7.
Neyðarskýli - félagsþjónusta
Málsnúmer 2606160
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu stofnunar tveggja smáhýsa til félagslegrar búsetu.
Bæjarráð samþykkir kostnað vegna stofnunar tveggja smáhýsa til félagslegra búsetu og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026. Fjölskyldusvið ásamt skipulags- og framkvæmdasviði falið að vinna að málinu áfram og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
8.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Málsnúmer 2009034
Farið yfir framkvæmdir og útfærslu ofanflóðavarna í Nes- og Bakkagiljum.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri komi á framfæri sjónarmiðum bæjarráðs vegna útfærslu varna.
9.
Ósk um gjaldfrjálsa notkun á Egilsbúð
Málsnúmer 2606206
Bréf frá Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir styrk til að halda afmælishátíð skólans í Egilsbúð í september.
Bæjarráð samþykkir að styrkja skólann sem nemur afnotum af Egilsbúð fyrir afmælishátíð skólans. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
10.
Breytt ábyrgðarskipting í málefnum barna með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2606194
Framlagður tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélga vegna samnings um börn með fjölþættan vanda.

Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð
mennta- og barnamálaráðuneytisins um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.

Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
11.
Skipun öldungaráða
Málsnúmer 2606189
Framlagt til kynningar erindi frá Landssamband eldri borgara (LEB) þar sem sambandið minnir á að samkvæmt lögum nr.125/1999 um málefni aldraðra ber sveitarfélögum að skipa öldungaráð.
12.
Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Málsnúmer 2606185
Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) fyrir 2025 lagður fram til kynningar.
13.
Ársreikningur orkusveitarfélaga 2025 til kynningar
Málsnúmer 2606186
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga (SO) fyrir 2025 lagður fram til kynningar.
14.
Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2606183
Fundargerð 98. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lögð fram til kynningar
15.
Ársfundur 2026
Málsnúmer 2604035
Framlögð til kynningar gögn frá ársfundi StarfA sem haldin var 29. apríl sl.
16.
Ungmennaráð - 25
Málsnúmer 2605010F
Fundargerð ungmennaráðs frá 20. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð ungmennaráðs.
17.
Öldungaráð - 27
Málsnúmer 2605009F
Fundargerð öldungaráðs frá 18. maí lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð öldungarráðs.
18.
Fjölskyldunefnd - 61
Málsnúmer 2606016F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 24. júní lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.