Fara í efni

Bæjarráð

951. fundur
13. júlí 2026 kl. 09:00 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Nýting glatvarma frá Alcoa með varamaskipti
Málsnúmer 2607041
Kynning á meistaraverkefni sem fjallar um uppsetningu á varmaskipti til að nýta glatvarma frá Alcoa á Reyðarfirði.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Farið yfir tillögur frá nefndum og ráðum vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
3.
Skólaakstur endurnýjun samninga 2026-2029
Málsnúmer 2607025
Lögð fram tillaga að framlengingu samninga um aksturs skólabarna.
Bæjarráð samþykkir að samningur Fjarðabyggðar og Tanna travel ehf. um akstur skólabarna verði framlengdur til næstu tveggja skólaára, 2026 til 2027 og 2027 til 2028.
4.
Almenningssamgöngur Suðurfirðir
Málsnúmer 2607028
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs minnisblaði um almenningssamgöngur á Suðurfjörðunum með tillögum að breytingum til að styðja við félags- og tómstundastarf barna.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að hefja viðræður við samningsaðila um mögulegar útfærslur á kerfinu. Málið tekið fyrir að nýju.
5.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2026
Málsnúmer 2607045
Framlagður tölvupóstur landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði sem óska eftir smölun lands síns.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að rannsaka og meta aðstæður á vettvangi og upplýsa bæjarráð.
6.
Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2212036
Fjallað um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til breytingu á reglum með vísan til umræðna á fundi. Endurskoðaðar reglur lagðar fyrir á næsta fundi til staðfestingar.
7.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Málsnúmer 2002092
Framlögð gögn vegna hönnunar á jafnhættulínum vegna ofanflóðavarna Grjótár á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir fundi Veðurstofu.
8.
Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga
9.
Auka aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2607065
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
10.
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Málsnúmer 2604231
Máli lyft upp úr fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar til frekari vinnslu hjá bæjarráði.
11.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 62
Málsnúmer 2606031F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. júlí tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar að undanskildum lið 2 í fundargerð.
12.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 63
Málsnúmer 2607006F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 10. júlí tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.