Bæjarráð
952. fundur
20. júlí 2026
kl.
08:30
-
11:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Hrafn Bjarnason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Framhaldið umræðu um mótun ramma fyrir fjárhagsáætlun ársins 2026 út frá tekjuspá og tillögum nefnda um breytingar á milli á ára.
Bæjarráð vísar vinnu við gerð áætlunar til síðari hluta ágústmánaðar þar sem endanlegir rammar verða gefnir út.
Bæjarráð vísar vinnu við gerð áætlunar til síðari hluta ágústmánaðar þar sem endanlegir rammar verða gefnir út.
2.
Kaup á nýrri slökkvibifreið
Framlögð tillaga slökkviliðsstjóra um kaup á nýrri slökkvibifreið fyrir Suðurfirði sem fjármögnuð yrði með styrkveitingu Fiskeldissjóðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu slökkviliðsstjóra.
Bæjarráð samþykkir tillögu slökkviliðsstjóra.
3.
Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar
Lögð fram tillaga að staðsetningu loftræstisamstæðu í Fjarðabyggðarhöllinni ásamt tillögu að útfærslu loftræstingarinnar. Tillagan gerir ráð fyrir að samstæðan verði við enda hlaupabrautar við hlið sandgrifju.
Bæjarráð samþykkir staðsetningu samstæðunnar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að leggja tillöguna fyrir Ungmennafélagið Val, KFA og FHL.
Bæjarráð samþykkir staðsetningu samstæðunnar og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að leggja tillöguna fyrir Ungmennafélagið Val, KFA og FHL.
4.
Ábendingaapp Fjarðabyggðar
Framlagður tölvupóstur og gögn Markaðsdeildar um tilboð í gerð íbúaapps fyrir Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að innleitt verði ábendingakerfi sem sé hluti af íbúaappi Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við fyrirtækið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
Bæjarráð samþykkir að innleitt verði ábendingakerfi sem sé hluti af íbúaappi Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við fyrirtækið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
5.
Reglur um launakjör kjörinna fulltrúa
Framlagðar endurskoðaðar reglur um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tillögu að nýjum reglum um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tillögu að nýjum reglum um launakjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
6.
Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár
Framlagðar og kynntar hugmyndir um nýtingu vatnsorku úr Njörvadalsá og Geithúsaá á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
7.
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Máli lyft upp úr fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar til frekari vinnslu hjá bæjarráði.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Fjarðabyggðar samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalur 1 verði auglýst með breytingum í samræmi við umræður fundarins.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Fjarðabyggðar samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Dalur 1 verði auglýst með breytingum í samræmi við umræður fundarins.
8.
Umferðarsamþykkt
Framlögð til umræðu gildandi umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð.
Tekið fyrir að nýju.
Tekið fyrir að nýju.
9.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2026
Tekin fyrir greinargerð skipulags- og framkvæmdasviðs um ágang sauðfjár á landi Óseyrar við Stöðvarfjörð. Vettvangsferð leiddi í ljós að sauðfé var ekki í landi Óseyrar.
10.
Erindi landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs
Framlagt til kynningar erindi landeiganda Óseyrar vegna ágangs búfjár.
11.
Fjölskyldunefnd - 62
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. júlí tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð fjölskyldunefndar.