Fara í efni

Bæjarráð

953. fundur
29. júlí 2026 kl. 08:30 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst
Málsnúmer 2607049
Framlögð tillaga yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar að kjörfundarstöðum og opnunartíma þeirra vegna Þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst n.k.
Sólbrekka í Mjóafirði.
Nesskóli í Neskaupstað.
Eskifjarðarkirkja á Eskifirði.
Safnaðarheimilið á Reyðarfirði.
Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði.
Grunnskólinn á Stöðvarfirði.
Grunnskólinn á Breiðdalsvík.
Kjörfundur á ofangreindum kjörstöðum verði frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði verði reynt að loka kl. 14:00.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir tillögu yfirkjörstjórnar að kjörstöðum og opnunartímum þeirra. Jafnframt er bæjarstjóra falið að vinna að gerð kjörskrár vegna kosninganna.
2.
Búrfjárbeit og ágangur búfjár
Málsnúmer 2606212
Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár lagðar fram til kynningar
3.
Aðalfundur Leigufélagsins Bríetar
Málsnúmer 2607149
Boðað er til aðalfundar Leigufélagsins Bríetar ehf, þann 18. ágúst 2026, kl. 12:00 hjá HMS í Borgartúni 21 eða á fjarfundi.
Bæjarráð felur Ragnari Sigurðssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalafundinum.
4.
Lögreglusamþykkt
Málsnúmer 2607120
Umfjöllun um lögreglusamþykkt Fjarðabyggðar.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu.
5.
Umferðarsamþykkt
Málsnúmer 2504048
Framlögð til umræðu gildandi umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu.
6.
Frystihússbryggja Eskifjörður
Málsnúmer 2606149
Farið yfir stöðu mála vegna dýpkunarframkvæmda og þau gögn og tölur sem borist hafa.
Bæjarráð samþykkir að gengið sé til samninga við Hagtak hf. og felur bæjarstjóra undirritun samnings um verkið.
7.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 64
Málsnúmer 2607008F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. júlí lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.

8.
Hafnarstjórn - 343
Málsnúmer 2607014F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. júlí tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð hafnarstjórnar.