Fara í efni

Bæjarráð

955. fundur
17. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjölmiðlaumfjöllun og upplýsingamiðlun Fjarðabyggðar sumarið 2026
Málsnúmer 2606215
Framlagt minnisblaðið um stöðu fjölmiðlaumfjöllunar og helstu mælikvarða í upplýsingamiðlun Fjarðabyggðar sumarið 2026.
2.
Veikindalaun 2026
Málsnúmer 2608041
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna kostnaðar vegna veikindalauna á fyrri hluta árs 2026.
Bæjarráð vísar minnisblaði til fjármálasviðs til frekari úrvinnslu og til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
3.
Framkvæmdir við Balaborg
Málsnúmer 2608062
Framlagt erindi frá Jaspis félagi eldri borgara á Stöðvarfirði vegna lóðar Balaborgar.
Erindi vísað til sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs.
4.
Breyting á félagsform
Málsnúmer 2608073
Framlagt bréf Sköpunarmiðstöðvarinnar vegna stimpilgjalda af fasteign sem færa þarf til milli félaga breytinga á félagsformi miðstöðvarinnar.
Bæjarráð felur bæjarritara að vinna málið áfram.
5.
Samstarfssamningur um hugbúnaðarlausn
Málsnúmer 2608069
Framlögð drög að samstarfssamningi um hugbúnaðarlausn sem nýtist í úrgangsmálum.
Vísað til áframhaldandi umræðu bæjarráðs.
6.
Fundur bæjarráðs með Vegagerðinni
Málsnúmer 2401188
Farið yfir verkefni Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð og vegakerfi sveitarfélagsins með umdæmisstjóra.
7.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst
Málsnúmer 2607049
Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar frá 11. ágúst 2026 þar sem lagt er til að gerð verði tilraun með rafræna kjörskrá.
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar.
8.
Aðalfundur föstudaginn 21. ágúst nk.
Málsnúmer 2608047
Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, föstudaginn 21. ágúst nk. kl.13:00.
Bæjarráð felur Ragnari Sigurðssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
9.
Óskað eftir framboðum til stjórnar
Málsnúmer 2608059
Kjörnefnd Samtaka orkusveitarfélaga auglýsir eftir framboðum til stjórnar samtakanna fyrir starfsárið 2026 til 2028 í tengslum við aðalfund samtakanna sem fram fer föstudaginn 21. ágúst 2026 kl. 13:00 í Borgartúni 30.
10.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 66
Málsnúmer 2608005F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
11.
Fjölskyldunefnd - 63
Málsnúmer 2607015F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 12. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.