Fara í efni

Bæjarráð

956. fundur
24. ágúst 2026 kl. 08:30 - 12:20
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2026
Málsnúmer 2602253
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur málaflokka fyrir janúar-júní auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar til júlí 2026.
2.
Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 2
Málsnúmer 2608142
Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 lagður fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Framhaldið vinnu við mótun ramma fjárhagsáætlunar 2027.
Bæjarráð vísar umræðu áfram til næsta fundar bæjarráðs.
4.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Málsnúmer 2604093
Framlögð greinargerð um stöðu framkvæmda það sem af er ári og framkvæmdir framundan. Farið yfir stöðu viðhaldsverkefna og framkvæmda hjá sveitarfélaginu.
5.
Veikindalaun 2026
Málsnúmer 2608041
Framlögð drög að greinargerð um veikindalaun og hlutfallstölur stofnana ásamt niðurstöðum Bradfordkvarða til kynningar.
6.
Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
Málsnúmer 2505129
Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði var skipaður 26. maí 2025 og skipunartími hópsins rann út í enda síðast kjörtímabils. Lagt fram erindisbréf hópsins og umræða um skipun hans.
Bæjarráð samþykkir að framlengja erindisbréf starfshópsins og kallað verði eftir fulltrúum Íbúasamtaka Eskifjarðar og Ungmennafélagsins Austra að nýju auk þess sem fulltrúi Miðflokksins bætist við og fulltrúi komi frá Samfylkingu í stað Fjarðalista.
7.
Samstarfsamningur Fjarðabyggðar og KFA
Málsnúmer 2608079
Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) hefur óskað eftir áframhaldandi samstarfi við Fjarðabyggð um kynningarmál þegar núverandi samningur rennur út í lok árs 2026.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði að uppfærslu á samningi sveitarfélagsins og KFA með vísan til áherslna sveitarfélagsins. Samningur lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.
8.
Umsókn um stækkun lóðar Hraun 4
Málsnúmer 2512112
Visað frá skipulags og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar Hraun 4, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkti fyrir sitt leyti stækkun á lóð með fyrirvara um óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Bæjarráð vísar umsókn um stækkun lóðar til bæjarstjóra til úrvinnslu.
9.
Auka ársfundur Austurbrúar 2026
Málsnúmer 2608077
Framlagt fundarboð auka ársfundar Austurbrúar sem haldinn verður 1. september nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
10.
Nýja svæði Dreka
Málsnúmer 2603166
Fulltrúar Skotíþróttafélagsins Dreka mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir starfsemi félagsins og áform þess um uppbyggingu svæðis.
11.
Stjórn menningarstofu - 40
Málsnúmer 2608008F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 18. ágúst lögð fram til afgreiðslu.