Fara í efni

Bæjarráð

957. fundur
31. ágúst 2026 kl. 08:30 - 12:40
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Stjórnkerfisnefnd 2026
Málsnúmer 2608281
Farið yfir stöðu verkefna sem unnið var að í tengslum við úttekt Deloitte sem og síðustu breytingar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að stjórnkerfisnefnd taki til starfa.
2.
Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Málsnúmer 2501185
Framlagt erindi frá R101 ehf. um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að fundað verði með fulltrúa fyrirtækisins um málið.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Málsnúmer 2603185
Framhaldið vinnu við mótun ramma fjárhagsáætlunar 2027.
Bæjarráð samþykkir framlagða ramma og felur nefndum og stjórnendum Fjarðabyggðar að hefja vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 á forsendum þeirra.
4.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Forstöðumaður menningarastofu fór yfir helstu verkefni og framtíðarþróun starfsemi menningarstofunnar.
5.
Staða úrgangsmála í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2608080
Farið yfir stöðu úrgangsmála í Fjarðabyggð, magntölur og þróun málaflokksins m.t.t umfangs og kostnaður það sem af er árinu 2027.
Málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
6.
Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
Málsnúmer 2505129
Skipan starfshóps um íþróttahúsið á Eskifirði og staðfesting erindisbréfs hópsins.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar verði Ragnar Sigurðsson formaður fjölskyldunefndar, Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður skipulags- og framkvæmdanefndar, Hrafn Bjarnason bæjarfulltrúi og Kamma Dögg Gísladóttir. Bæjarráð samþykkir jafnframt erindisbréf starfshópsins.
7.
Umsjón bifreiða sveitarfélagsins
Málsnúmer 2608280
Fjallað um bifreiðar sveitarfélagsins, umsjón þeirra og rekstur.
Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdasviðs endurskoðun á rekstri bifreiða sveitarfélagsins og leggja tillögur fyrir bæjarráð að nýju.
8.
Umsókn um lóð Árdalur 13
Málsnúmer 2608115
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Árdalur 13 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
9.
Framlag Fjarðabyggðar í Fasteignasjóði
Málsnúmer 2608285
Framlagt erindi ÖBÍ réttindasamtaka vegna framlags Fjarðabyggðar úr Fasteignasjóði vegna aðgengismála fatlaðra.
Erindi vísað til vinnslu hjá skipulags- og framkvæmdasviði vegna umsókna til verkefna í aðgengismálum.
10.
Erindi til allra sveitarfélaga vegna stefnumótunar í málaflokknum
Málsnúmer 2608163
Óskað er eftir því að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í vinnu vegna stefnumótunar og svari meðfylgjandi spurningum fyrir 21. september nk. Vísað til bæjarritara.
11.
Fjölskyldunefnd - 64
Málsnúmer 2608009F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 26. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
12.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 67
Málsnúmer 2608017F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
13.
Hafnarstjórn - 344
Málsnúmer 2608018F
Fundargerð hafnarstjórn frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.