Bæjarstjórn
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson og Esther Ösp Gunnarsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 281 frá 20.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Óskar Þór Hallgrímsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 282 frá 27.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 36 frá 13.febrúar 2012, samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Til máls tóku Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar, nr. 26 frá 23.febrúar 2012, samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson og fylgdi eftir tillögu um aukningu í málflokki fatlaðs fólks. Lagt er til að viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2012 verði samþykkur en hann felur í sér breytingar á fjárheimildum í málaflokki félagsmála. Ekki er um breytingu á niðurstöðu áætlunar að ræða þar sem kostnaðaraukningu er mætt með auknu framlagi úr jöfnunarsjóði. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að viðauka á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2012 vegna málefna fatlaðs fólks.
Kynningarfundur vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna fyrirhugaðrar eldsneytisafgreiðslu vestan Norðfjarðarvegar, er lokið. Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd vísaði tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 til auglýsingar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027.