Bæjarstjórn
114. fundur
10. maí 2012
kl.
16:00
-
18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 292
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 293
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð að undanskildum lið 10, málefni Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf. staðfest með 9 atkvæðum
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 25
Enginn tók til máls.
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 41
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
5.
Atvinnu- og menningarnefnd - 30
Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Eiður Ragnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.
Hafnarstjórn - 98
Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
7.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 24 frá 30. apríl s.l.
Enginn tók til máls.
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
8.
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands - Dagskrá og tilnefning á aðalfund
Bæjarstjóri fylgdi tilnefningum úr hlaði.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fela Páli Björgvini Guðmundssyni, Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur, Esther Ösp Gunnarsdóttur, Óðni Magnasyni og Pétri Þór Sörenssyni að vera fulltrúar Fjarðabyggðar á aðalfundi Menningarráðs Austurlands sem haldinn verður á Vopnafirði 11.maí 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Forfallist einhverjir af ofangreindum einstaklingum, og eigi ekki heimangengt á fundinn, er Páli Björgvini Guðmundssyni bæjarstjóra falið að fara með atkvæði viðkomandi á fundinum eða fela öðrum það umboð.
9.
Framkvæmdir við húsnæðisúrræði í málaflokki fatlaðs fólks - áætlanagerð sveitarfélaga og þjónustusvæða
Lögð fram til staðfestingar bæjarstjórnar umsögn félagsmálanefndar, félagsmálastjóra og verkefnastjóra hjá Skólaskrifstofu Austurlands, vegna framkvæmda við húsnæðisúrræði í málefnum fatlaðra.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir umsögnina með 9 atkvæðum.
10.
Verklag vegna breytinga á skipan í ráð,nefndir og stjórnir í stjórnkerfi Fjarðabyggðar
Verklag, vegna breytinga á skipan í ráð, nefndir og stjórnir í stjórnkerfi Fjarðabyggðar, lagt fram til samþykktar.
Enginn tók til máls.
Verklagið staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
11.
740-Aðalskipulag Fjarðab. 2007-2027 br. á vatnsv. svæði Fannardals
Bæjarstjóri fylgdi breytingum á aðalskipulagi Fjarðabyggðar úr hlaði.
Um óverulega breytingu er að ræða. Breytingin varðar ekki marga aðila. Landið sem um ræðir er innan tveggja jarða, Fannardals og Tandrastaða. Breytingin felur ekki í sér verulegar breytingar á landnotkun. Verið er að draga úr takmarkandi ákvæðum vegna vatnsverndar með því minnka umfang brunn- og grannsvæða. Gildandi skipulagsskilmálar haldast óbreyttir sbr. kafla 9.1.17 í aðalskipulagsgreinargerð.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum.