Fara í efni

Bæjarstjórn

328. fundur
3. mars 2022 kl. 16:00 - 16:52
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 744
Málsnúmer 2202010F
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 28. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
2.
Hafnarstjórn - 274
Málsnúmer 2202013F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 306
Málsnúmer 2202011F
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. febrúar að undanskildum 10. lið fundargerðar staðfest með 9 atkvæðum.
4.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 44
Málsnúmer 2202012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 21. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
5.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 96
Málsnúmer 2201006F
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
6.
Deiliskipulag Hlíðarenda - breyting, safnasvæði
Málsnúmer 2006072
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu deiliskipulags.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar breytingu deiliskipulags Hlíðarenda á Eskifirði. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og HAUST liggja fyrir án athugasemda.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda á Eskifirði.

Bókun bæjarstjórnar vegna stríðsátaka í Úkraínu. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fordæmir harðlega innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Bæjarstjórn lýsir yfir fullum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þær aðgerðir sem alþjóðasamfélagið hefur gripið til gegn yfirvöldum í Rússlandi. Vegna stríðsins í Úkraínu bætist nú enn við þann mikla fjölda fólks sem er á flótta í heiminum. Bæjarstjórn lýsir sig reiðubúna til að leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk á flótta og hvetur stjórnvöld eindregið til að bregðast hratt við ákalli alþjóðastofnana um slíka aðstoð.