Fara í efni

Bæjarstjórn

416. fundur
3. júní 2026 kl. 16:00 - 16:22
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir forseti bæjarstjórnar
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hrafn Bjarnason aðalmaður
Alma Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Kosning forseta bæjarstjórnar 2026
Málsnúmer 2605167
Aldursforseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.
Þuríður Lillý Sigurðardóttir er tilnefnd sem forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og komu ekki fram önnur framboð.
Þuríður Lillý Sigurðardóttir er því kjörin forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum og tók hún við stjórn fundarins.
2.
Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar 2026
Málsnúmer 2605168
Nýkjörinn forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri varaforseta.
Tilnefnd eru sem 1. varaforseti Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og 2. varaforseti Hrafn Bjarnason.
Aðrar tilnefningar eru ekki bornar fram og eru þau kjörin varaforsetar með 9 atkvæðum.
3.
Kosning bæjarráðs 2026
Málsnúmer 2605169
Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.
Tillaga er borin fram um að aðalmenn bæjarráðs verði:
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður.
Aðrar tillögur voru ekki bornar fram og er kosning bæjarráðs staðfest með 9 atkvæðum. Hrafn Bjarnason verður áheyrnarfulltrúi Miðflokksins. Varamenn bæjarráðs eru sbr. 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins þeir aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður, í þeirri röð sem þeir skipuðu lista við sveitarstjórnarkosningar.
4.
Kosning nefnda sveitarfélagsins 2026 - 2030 sbr. 62. gr.
Málsnúmer 2605021
Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri nefnda samkvæmt 62. gr. samþykkta.
Borin er fram sameiginleg tillaga framboðanna í Fjarðbyggð að kjöri fulltrúa sbr. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, i, b-hluti, skipan til 4 ára.

Fjölskyldunefnd:

Aðalmenn:
Ragnar Sigurðsson formaður D-lista
Helga Rakel Arnardóttir varaformaður B-lista
Sigrún Eva Grétarsdóttir B-lista
Valborg Ösp Warén Árnadóttir S-lista
Anna Guðný Gunnarsdóttir M-lista

Varamenn:
Íris Katla Guðmundsdóttir D-lista
Björgvin Karl Gunnarsson B-lista
Alma Eiðsdóttir B-lista
Salome Rut Harðardóttir S-lista
Þórunn Ólafsdóttir M-lista

Skipulags- og framkvæmdanefnd:

Aðalmenn:

Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður B-lista
Kristinn Þór Jónasson varaformaður D-lista
Húnbogi Sólon Gunþórsson D-lista
Hjördís Helga S Þóroddsdóttir S-lista
Hafþór Eiríksson M-lista

Varamenn:

Sigurjón Andrés Jónasson B-lista
Bryngeir Margeirsson D-lista
Sóley Katrín Heiðarsdóttir D-lista
Stefán Þór Eysteinsson S-lista
Guðröður Hákonarson M-lista

Hafnarstjórn
Aðalmenn:

Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður D-lista
Friðrik Jósepsson D-lista
Sigurjón Andrés Jónasson varaformaður B-lista
Birkir Snær Guðjónsson S-lista
Baldur Marteinn Einarsson M-lista

Varamenn:

Ingunn Eir Andrésdóttir D-lista
Sigurjón Rúnarsson D-lista
Guðbjartur Hjálmarsson B-lista
Adam Ingi Guðlaugsson S-lista
Hafþór Eiríksson M-lista

Stjórn Menningarstofu

Aðalmenn:

Birgir Jónsson formaður B-lista
Tanja Tómasdóttir varaformaður D-lista
Júlíus Óli Jacobesn M-lista
Arndís Bára Pétursdóttir (áh) S-lista


Varamenn:

Bjarney Birta Bergsdóttir B-lista
Hildur Ósk Pétursdóttir D-lista
Elís Ármannsson M-lista
Ásdís Helga Jóhannsdóttir (áh) S-lista


Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, ii, skipan til 4 ára. Almannavarnarnefnd.
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, iii, tilnefningar og kosningar a-hluti skipan til 4 ára. Fulltrúar á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Aðalmenn:
Ragnar Sigurðsson D-lista
Þuríður Lillý Sigurðardóttir B-lista
Stefán Þór Eysteinsson S-lista
Hrafn Bjarnason M-lista

Varamenn:
Kristinn Þór Jónasson D-lista
Birgir Jónsson B-lista
Hjördís Helga S Þóroddsdóttir S-lista
Alma Sigurbjörnsdóttir M-lista

Aðrar tillögur eru ekki bornar fram og er tillagan samþykkt með 9 atkvæðum.
5.
Ráðning bæjarstjóra 2026 - 2030
Málsnúmer 2605170
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ráðningu bæjarstjóra.
Framlögð tillaga um að ráða Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra Fjarðabyggðar frá og með 1. júní 2026 út kjörtímabilið. Jafnframt er lagður fram til staðfestingar ráðningarsamningur við bæjarstjóra.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að ráða Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn ráðningarsamning Jónu Árnýjar Þórðardóttur með 9 atkvæðum. Bæjarráði er falið að undirrita ráðningarsamning við bæjarstjóra.
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2026
Málsnúmer 2605183
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.
Framlögð drög að breytingum á samþykkt fyrir Fjarðabyggð sem felur í sér leiðréttingar og uppfærslur á 62. gr. samþykkta sveitarfélagsins.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa tillögu að breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
7.
Aukaaðalfundur SSA 2026
Málsnúmer 2605229
Framlagt til kynningar fundarboð auka aðalfundar SSA sem haldinn verður fimmtudaginn 4. júní nk. ásamt kjörbréfi fyrir fulltrúa Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Framlagt.
8.
Fundaáætlun bæjarstjórnar
Málsnúmer 2210125
Forseti bæjarstjórnar lagði til að næsti fundur bæjarstjórnar verði haldinn fimmtudaginn 18. júní nk. kl. 16:00 og síðasti fundur bæjarstjórnar fyrir sumarfrí verði 25. júní kl. 16:00.
Samþykkti bæjarstjórn tillögu með 9 atkvæðum.