Fara í efni

Bæjarstjórn

418. fundur
25. júní 2026 kl. 16:00 - 16:25
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar
Birgir Jónsson aðalmaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén varamaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Friðrik Júlíus Jósefsson varamaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Hrafn Bjarnason 2. varaforseti bæjarstjórnar
Baldur Marteinn Einarsson varamaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 948
Málsnúmer 2606018F
Fundargerð bæjarráðs nr. 948 frá 16. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Til máls tók Ragnar Sigurðsson

Fundargerð bæjarráðs nr. 948 frá 16. júní er staðfest með 9 atkvæðum
2.
Hafnarstjórn - 342
Málsnúmer 2606013F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 342 frá 16. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Engin tók til máls.

Fundargerð hafnarstjórnar nr. 342 frá 16. júní er staðfest með 9 atkvæðum
3.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 61
Málsnúmer 2606010F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 61 frá 23. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 61 frá 23. júní er staðfest með 9 atkvæðum
4.
Stjórn menningarstofu - 38
Málsnúmer 2606020F
Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 38 24. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Engin tók til máls.

Fundargerð stjórn menningarstofu nr. 38 frá 24. júní er staðfest með 9 atkvæðum.
5.
Grenndarkynning - hjólabraut ofan Mýrahverfið í Neskaupstað
Málsnúmer 2605020
Forseti mælti fyrir grendarkynningu.

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna hjólabrautar ofan Mýrarhverfis í Neskaupstað. Athugasemdir bárust ekki á auglýsingatíma.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar vegna hjólabrautar ofan Mýrarhverfis í Neskaupstað
6.
Deiliskipulag Leiru 1 Leirubakki 4 óveruleg breyting
Málsnúmer 2605211
Forseti mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Leiru 1 á Eskifirði vegna Leirubakka 4. Breytingin er metin óveruleg og hafi ekki grenndaráhrif.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Leira 1 á Eskifirði.
7.
Sumarleyfi bæjarstjórnar
Málsnúmer 1606067
Tillaga forseta bæjarstjórnar að sumarfríi bæjarstjórnar.

Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og hluta ágústmánaðar sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 20. ágúst 2026. Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að sumarleyfi bæjarstjórnar