Fara í efni

Bæjarstjórn

65. fundur
29. desember 2009 kl. 16:00 - 18:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2010 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir, síðari umræða
Málsnúmer 0912069
Til máls tóku:  Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Guðmundur Þorgrímsson.
 
Lögð er fram tillaga um að útsvarshlutfall ársins 2010 verði 13,28% og samþykkir bæjarstjórn tillöguna með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson.
 
Bókun Sjálfstæðismanna vegna síðari umræðu og afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, viljum vekja sérstaka athygli á þeirri stöðu sem fram kemur í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2010, þar sem tekjur sveitarfélagsins eru að dragast saman en rekstrargjöld eru að aukast, eigið fé verður neikvætt og skuldabyrgði verður íþyngjandi á komandi árum.  Munum við sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010.
Það er morgunljóst að halda verður vel utan um allan rekstur og fjárhagslega stjórnun sveitarfélagsins á næstu árum, og munum við Sjálfstæðismenn ekki skorast undan að taka þátt í þeirri erfiðu vinnu sem óhjákvæmilega er framundan hjá Fjarðabyggð.
Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður V. Guðmundsson (sign)
 
Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2010
Tölur í þús. kr.Rekstrar-niðurstaðaFjárfestingAfborganir lánaSala eignaLangtíma-lántaka
Samst.A-hluta-75.386132.500363.01320.000290.300
Samst.B-hluta78.546157.800197.66531.0000
Samst.AogB hluta3.160290.300560.67851.000290.300

Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2010 með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá, Valdimar O Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Þórður Vilberg Guðmundsson.

 

2.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs - síðari umræða
Málsnúmer 0911082
Enginn tók til máls.
Samþykktin er samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Bæjarráð - 178
Málsnúmer 0912016F
Til máls tóku:  Helga Jónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Þorbergur Hauksson, Guðmundur Þorgrímsson.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.