Bæjarstjórn
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja vekja sérstaka athygli á þeirri alvarlegu stöðu fjármála, sem fram kemur í ársreikningi Fjarðabyggðar 2009 og Endurskoðunarskýrslu KPMG frá því í apríl 2010. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Hvort sem litið er á samantekna neikvæða afkomu A og B hluta á árinu 2009, heildarskuldir og skuldbindingar í árslok, neikvætt eigið fé í árslok eða eiginfjárhlutfall, þá er staðan óásættanleg.
Þrátt fyrir hagræðingaraðgerðir á síðastliðnu ári, sem virðast ekki hafa skilað sér að fullu, er ljóst að skuldastaða sveitarfélagsins er afar erfið með hliðsjón af eiginfjárstöðu og greiðslugetu.
Þrátt fyrir þá staðreynd að fjárhagslegir framtíðarmöguleikar Fjarðabyggðar séu almennt taldir góðir, er mjög mikilvægt að leita allra leiða til þess að lækka skulda- og afborgunarbyrði sveitarfélagsins til lengri tíma, svo hægt sé að halda uppi ásættanlegu framkvæmdastigi. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu áfram vinna að því, af ábyrgð og festu, að snúa við þeim neikvæðu niðurstöðum sem birtast íí ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2009.
Þannig lagt fram á 71. fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, 6. maí 2010.
Valdimar O. Hermannsson (sign) Jóhanna Hallgrímsdóttir (sign) Jens Garðar Helgason (sign)