Bæjarstjórn
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fagnar framkominni skýrslu frá starfshópi SSA, Austurland-Austfirzk Eining enda dregið margt fram í henni af kostum og göllum við sameiningu Austurlands í eitt sveitarfélag. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar telur þó rétt á þessum tímapunkti að frekari vinna við hugmynd um sameinað Austurland í eitt sveitarfélag verði lögð til hliðar nú enda virðist áhugi við við slíka sameiningu vera misjafn hjá sveitarfélögum hér austanlands og einnig hjá ríkisvaldinu. Ljóst var strax í upphafi þessarar hugmyndar að ef hún ætti að verða að veruleika þyrfti ríkisvaldið að koma að henni með afgerandi hætti með samgöngubótum og flutningum verkefna.
Reynsla hins sameinaða sveitarfélags Fjarðabyggðar af efndum samgöngubóta í kjölfar sameiningar árin 1998 og 2006 er ekki sú að ástæða sé til að fara í frekari sameiningu nú á jafnstóru landsvæði og Austurland er. Enda er grundvallarforsenda slíkrar sameiningar víðtækar samgöngubætur.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar telur þó mikilvægt að sveitarfélögin á Austurlandi hafi áfram með sér gott samstarf og samvinnu á sem flestum sviðum og er SSA grundvöllur slíks samstarfs áfram.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mun því vísa til álits þessa við afgreiðslu skýrslunar á komandi aðalfundi SSA sem haldinn verður 30.sept -1.október næstkomandi.