Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

19. fundur
11. apríl 2011 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Málsnúmer 0903071

Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 1. apríl 2011 frá Framkvæmdarsýslu ríkisins og bréf mannvirkjastjóra dagsett 5. apríl 2011 vegna opnunartilboða í snjóflóðavarnir á Norðfirði.

Bréf voru tekin fyrir á fundi bæjarráðs þann 5. apríl sl. þar sem samþykkt var að taka tilboði frá Héraðsverk ehf. í verkið "Snjóflóðavarnir í Neskaupstað, varnargarðar og keilur". 

Tilboð Héraðsverks ehf. er að upphæð kr. 858.815.480 og nemur 68.3% af kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslu ríkisins.
Sex gild tilboð bárust í verkið eins og fram kemur í töflu hér fyrir neðan ásamt kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslu ríkisins:                                                                                                                                             

Héraðsverk ehf.

kr.    858.815.480

68,3%

Árni Helgason ehf. og Glaumur ehf.

kr.    866.896.000

68,9%

Suðurverk ehf.    

kr. 1.064.763.428

  84,7%

ÍAV ehf.

kr. 1.104.114.787

  87,8%

KNH ehf.

kr. 1.124.177.400

  89,4%

Ístak hf.

kr. 1.284.731.108

102,2%

Kostnaðaráætlun

kr. 1.257.620.700

100,0%

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Eftir athugun á fjárhagsstöðu og reynslu Héraðsverks, samkvæmt ÍST 30 og reglum um innkaup ríkisins, kom ekkert það í ljós sem mælir gegn fyrirtækinu sem verktaka í þessu verki.

Kostnaðarskipting í verkinu er þannig að ríkið greiðir 90% en Fjarðabyggð 10%. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í
vor og taki fimm sumur í allt en fimmta sumarið verður notað til uppgræðslu.

2.
Suðurfjarðarvegur ný veglína um Fáskrúðsfjarðarbotn
Málsnúmer 1103069

Lagður fram uppdráttur frá Vegagerðinni með nýja legu Suðurfjarðarvegar um Fáskrúðsfjarðarbotn, en uppdráttur var áður tekinn fyrir á 16. fundi nefndarinnar. Þar afgreiddi nefndin að veglína væri í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027. Nú er óskað eftir afstöðu nefndarinnar til vegtenginga sem settar eru fram á uppdrætti.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin gerir ekki athugasemdir við vegtengingar.
3.
Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2010
Málsnúmer 1104039
Lögð fram til kynningar ársskýrsla 2010 fyrir Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem samþykkt var á fundi Heilbrigðisnefndar þann 6. apríl sl.
4.
Fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2011
Málsnúmer 1104043
Lögð fram til kynningar 96. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands sem haldinn var 6. apríl sl.
5.
495.mál til umsagna um umferðalög (heildarlög)
Málsnúmer 1104005
Lögð fram til kynningar umsögn Eyþings um þingmál 495. Nefndin tekur undir athugasemdir Eyþings um 4. grein.
6.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Málsnúmer 1103025

Lagt fram bréf dagsett 11. apríl 2011 frá Laxar ehf. vegna umsóknar um laxeldi í Reyðarfirði. Einnig lögð fram greinargerð frá Laxar ehf. dagsett apríl 2011 sem send hefur verið inn til Skipulagsstofnunar. Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins til málsins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin frestar afgreiðslu, en mun taka málið fyrir á næsta fundi sínum.
7.
Viðbótarlóðasamningur vegna geymslusvæðis á Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 1103145

Lagðir fram uppdráttur og lóðarleigusamningur milli Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls, en samningur var samþykkur á 82. fundi Hafnarstjórnar, með eftirfarandi bókun:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

"Fyrir fundinum lágu drög að viðbótarlóðaleigusamningi við Alcoa vegna geymslusvæðis við Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn heimilar framkvæmdastjóra að ganga frá samningi við Alcoa."

 

Í samþykkt fyrir Hafnarstjórn 3. gr. 2. málsgr. stendur "Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnanna svo sem ráðstöfun á
aðstöðu. Ákvarðanir um leigu á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra skulu teknar í samráði við eigna-, skipulags- og umhverfissvið."

 

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslu Hafnarstjórnar og samþykkir leigusamning.

 

Stefán Már Guðmundsson vék af fundi.
8.
Leirupollur - lokafrágangur
Málsnúmer 1103172

 

Málið var áður á dagsskrá 17. fundar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og þar var bókað: <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

"Lögð fram hugmynd af hólma í "Leirupolli" við innkomuna í Reyðarfjörð, en hugmyndin er að nýta afgangsefni sem fellur til við smábátahöfnina á Reyðarfirði.

 

Nefndin samþykkir að gerður verði hólmi sambærilegur og sá sem er í andapollinum og felur mannvirkja- og umhverfissviðað fara í verkið."

 

Mannvirkjastjóri og formaður nefndarinnar hittu félaga í félagi "Leiruvina" milli funda og óskuðu þeir eftir því að nefndin skoðaði málið aftur, þá með það að fara ekki í gerð hólma í "Leirupolli". 

 

Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.

9.
730 - Grenndarkynning, Kvíagilslækur
Málsnúmer 1104056

Lagður fram uppdráttur af frágangi á læk í Kvíagili á Reyðarfirði, en lækur hefur verið í gegnum tíðina að grafa sig niður. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin samþykkir að farið verði með framkvæmdina í grenndarkynningu. Skal hún ná til Stekkjarbrekku, Stekkjargrundar, Stekkjarholts, Réttarholts og Búðareyri 28.
10.
730 - Grenndarkynning, Rafstöðvarlækur
Málsnúmer 1104057

Lagður fram uppdráttur af frágangi á umhverfi rafstöðvargils á Reyðarfirði, en gera verður stíg / aðgengi að foss í læk þannig að hægt sé að þjónusta hann. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin samþykkir að farið verði með framkvæmdina í grenndarkynningu. Skal hún ná til Ásgerðis að vestanverðu og Austurvegar 20 og 24.
11.
735 - Grenndarkynning, lækur innan við fótboltavöll
Málsnúmer 1104058

Lagður fram uppdráttur af frágangi á læk innan við fótboltavöllinn á Eskifirði, en lækur rennur  í dag í stokkum. Hluti af stokkunum er skemmdur, þannig að fyrir liggur að endurnýja þarf þá eða að öðrum kosti að opna læk eins og uppdráttur gerir ráð fyrir. Staðsetning á vallarhúsi kemur einnig fram.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin samþykkir að farið verði með framkvæmdina í grenndarkynningu. Skal hún ná til Dalbrautar 2, 3 og 3a, Ystadals 1 og 3 og Árdals 1.
12.
735 Strandgata 120 - Baðhús
Málsnúmer 1103125

Málið áður tekið fyrir á 17. fundi nefndarinnar, en þar var málinu frestað og vísað til sviðsins til frekari útfærslu með umsækjanda. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Farið hefur verið yfir málið og lagt til að lóð við Strandgötu 120, 735 Fjarðabyggð verði stækkuð, þannig að hún hafi rými fyrir heitan pott, sauna og hreinlætisaðstöðu.

 

Nefndin samþykkir stækkun lóðar og felur byggingarfulltrúa að gefa út nýtt lóðarblað og byggingarleyfi.
13.
715 Fjörður - Rafstöðuhús og geymsla
Málsnúmer 1104011

Lagt fram erindi dagsett 01. apríl 2011 frá Guðbjarti Hjálmarssyni fh. Sveins Benediktssonar og Guðríðar Guðbjartsdóttur þar sem sótt er um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði að stærð 42 m2 og rafstöðvarhús að stærð 9,6 m2 í landi Fjarðar í Mjóafirði.

Nefndin samþykkir að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi.

14.
Skógræktarfélagið sækir um leyfi til að planta trjám á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1103188

Lagt fram bréf, dagsett 30. mars frá Skógræktarfélagi Fáskrúðsfjarðar þar sem kemur fram ósk um leyfi til að planta trjám ofan og innan við byggðina eins og sýnt er á þéttbýlisuppdrætti Fáskrúðsfjarðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin felur umhverfisstjóra að ganga frá nýju samkomulagi við öll skógræktarfélög í Fjarðabyggð sem byggt er á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 til 2027.
15.
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 18
Málsnúmer 1104005F
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.