Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram bréf, dagsett 20. apríl sl. frá Mannvit hf. Einnig komu fulltrúar Mannvits hf., Haukur Óskarsson og Valgeir Kjartansson á fundi og kynntu verkefnið. Mannvit hf. hefur verið að undirbúa og skoða að koma á fót 450.000 rúmmetra olíubrigðarstöð við Eyri í Reyðarfirði. Jafnframt óskar Mannvit hf. eftir því að Fjarðabyggð verði aðili að áformayfirlýsingu sem væri á milli Mannvits hf., Fjarðabyggðar og landeigenda Eyrar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Mannvirkjastjóri vék af fundi undir þessum lið.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar fagnar þeim áhuga sem er til staðar á frekari uppbyggingu hafnsækinnar starfsemi og atvinnutækifæra í Fjarðabyggð, enda er það í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027, eins og kemur fram í 5. kafla greinargerðar aðalskipulags, þá sérstaklega kafla 5.3 Flutningar. Nefndin hvetur bæjarstjórn jafnframt til að vinna að málinu með hlutaðeigandi aðilum. Þá meðal annars með það fyrir augum að sjá hvort af þessu geti orðið og eins með hvaða hætti aðkoma sveitarfélagsins yrði að skipulags og lóðamálum.
Bæjarráð vísaði á fundum sínum nr. 241 þann 12. apríl og nr. 242 þann 26. apríl sl. til umsagnar hjá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd erindi frá Löxum ehf., dagsett 11. apríl 2011 og bréfi Skipulagsstofnunar dags. 15. apríl 2011. Óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og atvinnu- og menningarnefndar vegna tilkynningar um eldi á 6000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram tillaga að umsögn Fjarðabyggðar til skipulagsstofnunar ásamt drögum af yfirlýsingu frá Laxar ehf.. Umsögnin tekin til umfjöllunar.
Nefndin samþykkir umsögnina og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 15. apríl sl. frá nefndarsviði Alþingis, með beiðni frá iðnaðarnefnd um umsögn á frumvarp laga um vatnalög og rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (tímalengd nýtingarleyfa og forgangsréttur), 720. mál.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin mun fylgjast með umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Drög að umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar var send á Austfjarðarleið og Tanna Travel til umsagnar. Bæði fyrirtæki fóru yfir drögin, Tanni Travel hafði engar athugasemdir en Austfjarðarleið sendi inn athugasemdir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir athugasemdir, en frestaði afgreiðslu þar til að svar frá ráðuneyti liggur fyrir varðandi umferðarhraða, þ.e. breytingu á reglugerð 930/2006.
Lagt fram bréf frá Ferðafélagi Fjarðamanna vegna uppsetningar á upplýsingarskiltum, en félagið óskar eftir að fá að setja skilti á eftirfarandi staði:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
- á Karlsskála í Reyðarfirði
- við leið upp á Valahjalla undir Sauðatindi í Reyðarfirði
- á Kirkjubóli í Vöðlavík
- við Karlsstaði í Vöðlavík, við skála félagsins
Einnig er sótt um að fá að stika leið milli Karlsskála í Reyðarfirði og Karlsstaða í Vöðlavík með tréstikum. Jafnfram er sótt um leyfi til að merkja hluta leiða með málun, þá er aðallega horft til brattra fjallaskarða og gilja, er þetta ráðlagt til að auka öryggi göngufólks á þessum stöðum.
Nefndin samþykkir að félagið setji upp skiltin, en fer fram á að það verði gert í samráði við landeigendur eins og fram kemur í bréfinu. Einnig veitir nefndin leyfi til að félagið máli steina í stað þess að setja upp stikur á ákveðnum stöðum.Deiliskipulag Dalbraut 1, Eskifirði. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti 4. mars 2011 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Dalbraut 1 á Eskifirði. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 8. mars 2011 til 19 apríl 2011. Athugsemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna-, og skipulagsfulltrúa að afgreiða skipulagið til Skipulagsstofnunnar og þaðan í auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Lagðar fram tvær tillögur að skipulagi fyrir innkeyrslu og tjaldsvæði í botni Reyðarfjarðar, en þar er bæði gert ráð fyrir hólma og ekki. Í báðum er gert ráð fyrir vatnsuppistöðu milli Búðareyrar og Ægisgötu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna-, skipulagsfulltrúa að klára skipulag sem er í samræmi við núverandi frágang á svæðinu.
Lagt fram bréf frá Eimskipafélagi Íslands dagsett 7. apríl 2011 þar sem félagið endurnýjar umsókn sína um lóð nr. 12 við Mjóeyrarhöfn.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að endurúthluta lóð nr. 12 við Hraun til Eimskipafélagsins og vísar erindinu til afgreiðslu hjá bæjarráði.
Fyrirspurn frá Arkitektastofunni Form ehf. vegna viðbyggingar við Hafnargötu 1, 730 Fjarðabyggð, en þar er ráðgert að opna bakarí. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur vel í erindið og felur sviðinu að vinna málið áfram með Form ehf.