Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram bréf frá sóknarnefnd Stöðvarfjarðarkirkju, móttekið 27. maí 2011, vegna frágangs á lóð umhverfis kirkjuna.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að farið verði í hönnunarvinnu og deiliskipulagsgerð á næsta ári. Öðru í bréfinu er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.
Lagt fram bréf frá snillihóp leikskólans á Eskifirði til bæjarstjóra, en þar er beðið um rennibraut í stað kastala sem tekinn var niður árið 2009. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur vel í erindið en inn á framkvæmdaáætlun nefndarinnar hefur verið gert ráð fyrir nýju leiktæki á lóð skólans. Nefndin mun gera tillögu til bæjarráðs að tryggt verði fjármagn í rennibraut við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir Fráveitu Fjarðabyggðar. Gjaldskrá stofngjalds fráveitu hækkar um 8 % og gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa um 48 %. Báðar hækkanir taka mið af breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Unnið er að því að setja saman í eina gjaldskrá, allar tekjur fráveitunnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Jafnframt leggur nefndin til að álagningarstuðull fyrir holræsagjald verði 0,29 af húsmati fasteignargjalda. Gjaldskráin mun taka gildi 1. janúar 2012.
Nefndin vísar tillögum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjöld byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar. Gjaldskrá hækkar almennt um 8 %, sem er í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Þar fyrir utan lagt til frekari hækkunar og breytingu á nokkrum gjaldliðum. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa. Gjaldskrá hækkar um 8 %, þ.e. sem nemur hækkun á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun gjaldskrár. Auk þess er verið að setja inn nýja gjaldliði í gjaldskrá í samræmi við 20. gr. nýrra skipulagslaga nr. 123/2010. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá gatnagerðargjalda. Gjaldskráin hækkar um 8 % eða sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Jafnframt samþykkir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tillögu mannvirkjastjóra að gefinn verði 50 % afsláttur á gatnagerðagjöldum fyrir íbúðarhúsnæði á árinu 2012. Lagt er til að eftirfarandi skilyrði séu fyrir veitingu á afslætti:
- lóðarumsókn sé í skipulögðu hverfi.
- lokið hafi verið við lagningu allra heimæða og að yfirborð götu sé malbikað.
- að byggingarframkvæmdir hefjist á árinu 2012.
- að umsækjandi sé skuldlaus við sveitarfélagið.
Nefndin vísar tillögum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá fyrir hunda- og kattarleyfi í Fjarðabyggð verði óbreytt á milli ára, þ.e. leyfi fyrir hund verði 14.500 kr og fyrir kött verði 9.500 kr á árinu 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar. Gjaldskráin hækkar um 8 % þ.e. sem nemur breytingu á byggingarvísitölu frá síðustu endurskoðun á gjaldskrá. Einnig leggur nefndin til að notkunargjald hjá Vatnsveitu Fjarðabyggðar verði 31 kr/m3 og að álagningarstuðull fyrir vatnsskatt verði 0,31 af húsmati fasteignargjalda. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar vegna söfnunar- og móttökustöðvar og urðunarstaðs um vísitöluhækkun á árinu 2011. Auk þess er lagt til að hækka gjaldskrá aukalega um 3 % vegna áætlaðrar meðaltals hækkunar á vísitölu næsta árs. Einnig er lagt til að gjald vegna sorphreinsunar- og förgunargjalda verði lækkað um 2.278 kr á ári. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá dreifingar hjá Rafveitu Reyðarfjarðar um 10 % 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að hækka gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, Eskifirði um 4,5 % 1.janúar 2012. Með því hækkar vatnsgjald í 150 kr/m3 og mælagjald í 25.000 kr/ári fyrir allt íbúðarhúsnæði. Önnur gjöld eins og tengigjöld hækka um 15 %. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu mannvirkjastjóra um gjaldskráhækkun fyrir fjarvarmaveitur. Lagt er til að gjaldskrá verði hækkuð um 10 % og að ný gjaldskrá taki gildi 1. janúar 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram bréf Sjóminjasafns Austurlands frá 17. október 2011 þar sem óskað er eftir að unnið verði deiliskipulag svæðisins frá Hlíðarendaá út að Mjóeyri á Eskifirði. Sjóminjasafn Austurlands fer þess á leit að deiliskipulagið taki mið af hugmyndum og þörfum í safnamálum á svæðinu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur vel í erindið og felur eigna- og skipulagsfulltrúa að funda með stjórn Sjóminjasafns Austurlands og koma með nánari útlistun á þörfum og óskum stjórnarinnar.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 20. október 2011 frá Alcoa Fjarðaáli, þar sem kemur fram beiðni um framlengingu á stöðuleyfi fyrir starfsmannaþorp. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin er tilbúinn að skoða framlengingu stöðuleyfi til 1. maí 2012 og fyrir þann tíma þarf að liggja fyrir tímaáætlun um hvernig þorpið verður fjarlægt fyrir árslok 2012. Nefndin felur mannvirkjastjóra að ræða útfærslu og greiðslur á þessu samkomulagi við Alcoa Fjarðaál og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.