Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Helgustaðarnámu dagsett 08. mars 2012. Tillagan er unnin af Landmótun sf.
Markmið deiliskipulagstillögunnar er að vinna skipulag af svæðinu til að móta stefnu um uppbyggingu stíga og áningastaða á svæðinu þar sem áhersla er lögð á bætt aðgengi fyrir ferðamenn og þar með betri stýringu ferðamanna um svæðið og minnka álag.
Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar í auglýsingu.
Lagt fram minnisblað eigna- og skipulagsfulltrúa þar sem ferill deiliskipulagstillögu fyrir Högnastaði, lóð 1 er rakinn. Minniháttar breytingar hafa orðið á deiliskipulaginu en í þeim felst að byggingarreitur minnkar, leyfileg hámarksstærð frístundahúss minnkar úr 50 m2 í 30 m2 og stærð geymslu minnkar úr 10 m2 í 4 m2. Einnig er möguleg aðkoma að svæðinu af Helgustaðarvegi felld út og er aðkoma einungis möguleg frá heimreið að Högnastöðum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir deiliskipulagið fyrir sitt leyti og vísar til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 4. mars 2012, frá Bjarna Björnssyni Ljósalandi Fáskrúðsfirði. Þar er farið yfir það hvort hægt sé að loka fyrir umferð hesta á veginum upp að Ljósalandi svo og á veginum í kringum Ósinn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að umferð hesta verði bönnuð við Ósinn, heimreið að Ljósalandi og á göngustígum neðan við Ljósaland. Bannmerki verði sett við gatnamót heimreiðar að Ljósalandi við Búðarveg.
Lögð fram tillaga, dagsett 8. mars 2012, um skilgreind hundasvæði í Fjarðabyggð. Einnig lögð fram umsögn, dagsett 11. febrúar 2012, frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands vegna sama máls.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd samþykkir að skilgreind hundasvæði í Fjarðabyggð verði við hvern þéttbýlisstað samkvæmt heimild í samþykkt um hundahald í Seyðisfjarðarkaupstað, á Fljótsdalshéraði, í Fjarðabyggð og í Vopnafjarðarhreppi.
Í Norðfirði er svæðið innan við íbúabyggð, fyrir ofan gamla frystihúsið, norðan Norðfjarðarvegar, svæðið er um 3 ha. að stærð. Í Eskifirði er svæðið innan byggðar, ofan vegslóða og utan við Þverá, um 6 ha. svæði. Í Reyðarfirði er svæðið í fjarðarbotni, innan við Geithúsaá, stærð svæðis er um 7 ha. Í Fáskrúðsfirði er svæðið gamla flugbrautin, alls um 10 ha svæði. Í Stöðvarfirði er svæðið utan við byggðina, neðan Suðurfjarðarvegar, innan við gámavöllinn, stærð um 3 ha. Við innkomu á þessu svæði verður komið upp ruslatunnum en önnur þjónusta er ekki veitt. Svæðin verða síðan auglýst og kynnt sérstaklega fyrir hundaeigendum og fyrir öðrum íbúum sveitarfélagins. Afmörkun svæðanna verður aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagins.
Tillögur að útliti og staðsetningu upplýsingaskilta við innkomu í hverfi kynntar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu framkvæmdasviðs að útliti og staðsetningu upplýsingarskilta við innkomu í þéttbýliskjarna Fjarðabyggðar. Nefndin leggur þó til að bætt verði við skiltum við innkomuna í Fjarðabyggð, bæði á Stöðvafirði og Reyðarfirði, þar væru skilti sem sýni Fjarðabyggð í heild, með þjónustuaðilum óski þeir eftir því. Jafnframt sendir nefndin tillögurnar til umsagnar hjá atvinnu- og menningarnefnd.
Lagður fram tölvupóstur frá 1. mars sl. frá Mannvirkjastofnun, vegna ráðstefnu slökkviliða og Mannvirkjastofnunar árið 2012. Mannvirkjastofnun hefur m.a. eftirlit með framkvæmd laga um mannvirki og laga um brunavarnir. Stofnunin skal tryggja samræmingu á byggingareftirliti og eldvarnaeftirliti og starfsemi slökkviliða um land allt í samráði við viðkomandi stjórnvöld.
Árlega heldur Mannvirkjastofnun ráðstefnu fyrir slökkviliðin þar sem fjallað er um helstu breytingar sem orðið hafa á laga og reglugerðarumhverfi undangengins árs og kynnt helstu mál sem verið er að vinna að. Ráðstefnan er jafnframt samráðsvettvangur stofnunarinnar við slökkviliðin og hefur undanfarin ár verið lögð vaxandi áhersla á að málefni þar sem mikilvægt er að álit slökkviliðanna komi skýrt fram séu rædd í vinnuhópum á ráðstefnunni og að niðurstöðum vinnuhópanna sé skilað inn þannig að hægt sé að nýta þær sem best í áframhaldandi vinnu í málaflokknum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Mannvirkjastofnun vill með þessum tölvupósti hvetja sveitarstjórnarmenn og sveitarstjóra til að mæta á ráðstefnuna.
Nefndarmenn sjá sér ekki fært að mæta, en slökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður munu mæta á ráðstefnuna.
Lögð fram drög að samningi við félög eldriborgara vegna húsvörslu í félagsheimilum án rekstraraðila.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir framlögð drög og felur framkvæmdarsviði að ganga frá samningum.
Lagt fram bréf, dagsett 2. mars 2012, frá umhverfisráðuneytinu vegna breytinga á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, vegna innleiðingar á úrgangstilskipun 2008/98/EB. Óskar ráðuneytið eftir athugasemdum við framvarpsdrögin fyrir 16. mars nk. Samband íslenskra sveitarfélaga er að vinna umsögn í samvinnu við verkefnahóp um hagsmunargæslu í úrgangsmálum sem er á vegum sveitarfélaga, þar á meðal Fjarðabyggðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir að fá umsögnina til kynningar þegar hún liggur fyrir.
Lagt fram bréf, dagsett 9. mars 2012, frá Olíudreifingu vegna viljayfirlýsingar um lóð undir fyrirhugaða þjónustumiðstöð fyrir fyrirtæki sem hyggjast stunda olíuleit og vinnslu á olíu á Drekasvæðinu. Einnig farið yfir kynningu sem Olíudreifing sendi með bréfinu. Málið var tekið fyrir á 284. fundi bæjarráðs og vísað til umræðu í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram með hafnarstjórn og bæjarráði.
Nefndin samþykkir að heimila umsækjanda eyðingu meindýra til prufu til loka apríl í ár og að þeim tíma verði ákvörðun nefndarinnar endurskoðuð.