Fjölskyldunefnd
50. fundur
9. febrúar 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Birgir Jónsson
varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Magnús Árni Gunnarsson
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Líneik Anna Sævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir
sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatöl 2026-2027
Fjölskyldunefnd staðfestir fyrri ákvörðun um sumarlokanir leikskóla árið 2026 og samþykkir fyrirliggjandi tillögu um sumarloknir árið 2027. Samþykkt er að fyrsti skóladagur í grunnskólum Fjarðabyggðar verði 24. ágúst 2026.
2.
Gjaldskrá frístundaheimila 2026 2.útgáfa
Tillaga að breytingu á gjaldskrá frístundaheimila í Fjarðabyggð lögð fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs.
3.
Fundargerðir farsældarráðs á Austurlandi 2026
Fundargerð 1. fundar Farsældaráðs Austurlands lögð fram til kynningar
4.
Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum - reglur og verkferlar (endurskoðun)
Lögð eru fram uppfærð drög að reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum, ásamt verkferlum. Með reglunum er m.a. skýrt ferli og ábyrgð vegna úthlutunar til skóla til að tryggja samhæfingu og fullnýtingu mannvirkja. Málinu er vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs.
5.
Bréf vegna tóbaksnotkunar
Nefndin telur tilefni til að yfirfara reglurnar í ljósi ábendingarinnar og vísar erindinu til mannauðs- og umbótasviðs. Sviðstjóra mannauðs- og umbótasviðs er falið að svara erindinu.
6.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Fjölskyldunefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar til bæjarráðs.
7.
Til umsagnar 311. mál Réttindavernd fatlaðs fólks
Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks kynnt.
8.
Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60
Niðurstöður rannsóknar á húsnæðisþörf fyrir 60 ára og eldri kynntar fyrir fjölskyldunefnd.
9.
Til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Frumvarp til laga um Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
10.
Til umsagnar 312. mál -Frumvarp til laga: Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Til umsagnar 312. mál. Frumvarp til laga - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.). Sviðstjóra fjölskyldusviðs falið að rita umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
11.
Vallavinnusamningur 2026
Frestað til næsta fundar. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
12.
Öldungaráð - 22
fundargerð 22. fundar öldungaráðs kynnt
13.
Öldungaráð - 23
fundargerð 23. fundar öldungaráðs kynnt