Fjölskyldunefnd
51. fundur
16. febrúar 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Birgir Jónsson
varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Salóme Rut Harðardóttir
varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Magnús Árni Gunnarsson
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir
sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Fyrstu drög að starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027 lögð fyrir fjölskyldunefnd.
2.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026 lagðar aftur fyrir fjölskyldunefnd vegna þess að eldri reglur voru lagðar til grundvallar endurskoðun síðasta fundar en er leiðrétt í meðfylgjandi drögum að reglum. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.
3.
Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Vísað frá bæjarráði til nefnda sveitarfélagsins að óskum innviðaráðuneytisins um hvernig einfalda megi regluverk um verkefni sveitarfélaga. Óskað er eftir tillögum fagsviða og nefnda um verkefni sem væru til þess fallin að einfalda reglur sem sveitarfélögum eru settar. Stjórnendum fjölskyldusviðs falið að vinna tillögur og leggja fyrir nefndina að nýju.
4.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - merki
Tillaga að merki sameiginlegrar barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leyti sameiginlegt merki Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
5.
Þróun mála barnaverndar og samþættrar þjónustu árin 2023-2026
Þróun mála í barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í Fjarðabyggð árin 2023-2025 kynnt.
6.
Vallavinnusamningur 2026
Fjölskyldunefnd samþykkir nýjan vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir tímabilið 01.01.2026 - 31.12.2028. Samningsfjárhæð fyrir árið 2026 er samþykkt samkvæmt sundurliðun í samningnum og samningsfjárhæð fyrir árin 2027 og 2028 tekur breytingum í samræmi við almenna verðlagsbreytingu í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar samkvæmt ákvæðum samningsins. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
7.
Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar
Fjölskyldunefnd heimilar útleigu á gamla ræktarsalnum í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði til lögreglunnar til eins árs samkvæmt framlögðum leigusamningi, þar sem leigan er skýrt afmörkuð við gamla ræktarsalinn (speglasalur undanskilinn) og leigutaki annast og greiðir fyrir öll þrif á hinu leigða rými.